Leiðindar hljóð í W124 E200

#1
Jæja strákar nú er bara að sjá hvort ég geti komið þessu frá mér eins og maður..

Þannig er mál með vexti að þegar ég er að keyra og sleppi bensíngjöfinni þá kemur leiðindar stöðugt hljóð sem ég ætla að reyna að túlka hérna.

Hljóðið er semsagt svona svipað og voða lágt bremsu járn í járn hljóð, hljómar einhvernveginn svona "gghhhhhhh" gæti líka jafnvel verið vakúm leki, sjitt mér líður alveg eins og hálfvita hérna að reyna að lýsa hljóði hahaha.

En endilega ef þið eruð að fatta hvað ég er að meina og kannist við þetta þá megið þið endilega deila því með mér hérna ef þið hafið einhverjar kenningar..

Þetta er ekkert voða hátt en djöfull er þetta pirrandi fyrir mann sem vill hafa allt tipp topp.


1995 W124 E200 "Daimlerinn"

Re: Leiðindar hljóð í W124 E200

#2
Sæll,
mér fynnst þú lýsa þessu sem legu-nið,væri betra ef þú gætir staðsett hvaðan niðurinn kemur,aftan,framan,vinstri,hægri.
Það sem mér dettur í hug að gæti verið:
Lega í drifskafti (upphengja)?
Hjólalegur?
Laus felga?
Drif?

Láttu okkur vita hvað þú finnur út úr þessu.
Kv.Elías
Kv.Elías
MB 300