Re: mótorpúðaskipti í w124 ?

#2
Árni91 skrifaði:getrur einhver sagt mér hvort það sé mikið mál að skipta um vinstri mótorpúða í w124 E200 91 árg. og hvernig maður á að komast að honum?

og líka ein heimskuleg spurning, þegar talað er um vinstri mótorpúðann, er þá ekki verið að meina bílstjóramegin?? eða er það vinstra megin frá ef maður stendur fyrir framan bílinn??

Árni

Það er best að komast að þessu neðanfrá eða á lyftu.

Allt sem flokkað er vinstra og hægra í bíl miðast við eins og þegar þú situr undir stýri á bílnum. Í bíl sem er með stýriði vinstra megin eins og allflestir bílar eru hér á landi að þá er vinstra megin alltaf bílstjóramegin.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: mótorpúðaskipti í w124 ?

#3
Sæll

Ég tek það þannig að um sé að ræða púðan sem er bílstjóramegin en maður þarf að setja bílinn á búkka að framan svo maður komist undir hann, svo þarftu að hafa tjakkinn kláran og setja undir pönnuna þegar búið er að losa púðan og lyfta mótornum aðeins upp. Sá sem er ónýtur er samanrekinn þ.e lægri en nýji púðinn en þeir eru eins báðummegin við mótorinn, snúa bara ekki eins. losar bolta uppi og niðri minnir að annar sé sexkantur og kriss bamm búmm :Driverauto:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: mótorpúðaskipti í w124 ?

#5
Mercedes-Benz skrifaði:
Árni91 skrifaði:getrur einhver sagt mér hvort það sé mikið mál að skipta um vinstri mótorpúða í w124 E200 91 árg. og hvernig maður á að komast að honum?

og líka ein heimskuleg spurning, þegar talað er um vinstri mótorpúðann, er þá ekki verið að meina bílstjóramegin?? eða er það vinstra megin frá ef maður stendur fyrir framan bílinn??

Árni

Það er best að komast að þessu neðanfrá eða á lyftu.

Allt sem flokkað er vinstra og hægra í bíl miðast við eins og þegar þú situr undir stýri á bílnum. Í bíl sem er með stýriði vinstra megin eins og allflestir bílar eru hér á landi að þá er vinstra megin alltaf bílstjóramegin.
Er ekki vinstra megin við bílstjóra alltaf vinstrameginn við bílstjóra? :twisted:

Sem sagt, það miðast við bílstjóra.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: mótorpúðaskipti í w124 ?

#6
BaraBenz skrifaði:Er ekki vinstra megin við bílstjóra alltaf vinstrameginn við bílstjóra? :twisted:

Sem sagt, það miðast við bílstjóra.

Jú mikið rétt... Vinstra megin er hinsvegar ekki "bílstjóramegin" í bíl sem er með stýrið hægra megin.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)