Ágæti Þórður Arnar,
ef þú hefðir látið þetta með Enter takkann duga, sem er að mínu mati hin ágætasta ábending, þá e.t.v. væri þessi umræða ekki komin á "popp & kók stigið" á milli ykkar Þrastar
Það að þú skyldir setja út á ritmál eða stafsetningu höfundar þráðarins er það sem fór í taugarnar á mér og hugsanlega fleirum. Þú ert nefnilega ekki alveg "saklaus" af villum þar sem þær eiga það til með að slæðast með því sem þú ritar sjálfur. Væri það e.t.v. ráð að leggja sig fram við að skrifa sjálfur rétt mál áður en maður fer að setja út á það sem aðrir skrifa
Hér fyrir neðan er nokkur dæmi úr innleggjum þínum í þessum þræði
Þórður A. skrifaði:Maður skrifar Stífla.
Stífla, sem er bæði til sem kvenkynsnafnorð og sagnorð, er með litlum staf nema að orðið sé fremst í setningu (sbr. þessari hérna sem ég rita) eða að það sé örnefni (heiti á t.d. stað, bæ).
Þórður A. skrifaði:
EDIT: Nú og þá eyðir hann sínu kommenti... Einkenni svolítið suma spjallstjórnendur hér...
Skildi upphaflega ekki alveg setninguna

Á þetta að vera
"Einkennir svolítið suma spjallstjórnendur hér"?
Annars geta allir breytt sínu innleggi, það hefur alltaf verið opið fyrir það í spjallkerfinu en aðeins stjórnendur spjallsins geta eytt innleggjum í heild.
Þórður A. skrifaði:
Afhverju tekuru "Ekkert sérlega vel gefnir" fram í rauðum lit? Helduru áfram að tala illa um mig? Hvað hef ég sagt um þig eða nokkurn annann til þess að.......
Af hverju,
tekur þú og
heldur þú eru ekki samsett orð þó þau hljómi oft þannig í framburði hjá fólki.
Þá er bara eitt n í enda fornafsins annar (annan), sama gildir um raðtöluna annar og karlmannsnafnið Annar.
Þórður A. skrifaði:....
Samt helduru áfram að tala eins og að ég sé að húðskamma fólk fyrir að skrifa ranga Íslensku eða nota ekki enter takkann.
Skv. sk-reglunni þá er aldrei stór stafur í tungumálum og þjóðerni (t.d. íslenska, enska, þýska, íslenskur, enskur, þýskur...) þannig að þarna hefði átt að standa
ranga íslensku...
Það eru töluvert fleiri dæmi í þessum þræði sem ég gæti bent þér á en læt þetta duga.
Vona annars að "öddi.." afsaki innrásina á þráðinn hans og að hann, ásamt "Tommibb" fái einhverja úrlausn á sínum vandamálum.