124 - sjálfskipting skiptir ekki úr 2 í 3,4

#1
Sælir

124 230E vandamál með sjálfskiptingu. Hann bakkar og keyrir í 2 gír en skiptir ekki upp í þriðja eða fjórða. Var fyrst að hika við að skipta, neitaði stundum og hrökk svo í lag, en núna er hann alveg hættur að vilja að skipta upp. Kannast einhver við svona vandamál?

kv Halli H.


Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

Re: 124 - sjálfskipting skiptir ekki úr 2 í 3,4

#3
Fékk ábendingu um að pikk rofinn undir bensín gjöfinni gæti verið fastur. Athugaði rofann og var hann í lagi. Las mér aðeins til um sjáfskiptingar í 124 og prufaði í kjölfarið að stilla inngjafar barkann og barkann sem fer niður í sjálfskiptinguna, kallast pressure plate adjuster. Átti að vera 1mm slag í honum en var 1,5 CM ... hann skiptir núna upp og niður en með smá rikkjum (mismunandi eftir inngjöf) þarf að fínstilla þetta og sjálfsagt að skipta um sjálfskipti vökva og síu í leiðinni. Það er næst á dagskrá. 8)

Kv Halli H.
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

Re: 124 - sjálfskipting skiptir ekki úr 2 í 3,4

#4
HHH skrifaði:Fékk ábendingu um að pikk rofinn undir bensín gjöfinni gæti verið fastur. Athugaði rofann og var hann í lagi. Las mér aðeins til um sjáfskiptingar í 124 og prufaði í kjölfarið að stilla inngjafar barkann og barkann sem fer niður í sjálfskiptinguna, kallast pressure plate adjuster. Átti að vera 1mm slag í honum en var 1,5 CM ... hann skiptir núna upp og niður en með smá rikkjum (mismunandi eftir inngjöf) þarf að fínstilla þetta og sjálfsagt að skipta um sjálfskipti vökva og síu í leiðinni. Það er næst á dagskrá. 8)

Kv Halli H.
Heyrðu ég fór og gerði alveg það sama og þú, rofinn þarna virtist vera í lagi, síðan sá ég þennan svakalega slaka á barkanum sem þú varst að tala um og ég lagaði það og hann SKIPTI SÉR LOKSINS :D Takk æðislega, ég hélt reyndar að við höfðum stillt þennan barka áður en hann hefur kannski bara slakknað aftur.
Subaru Justy J12 1990
Mercedes-Benz 230E w124 '91 - Seldur

Re: 124 - sjálfskipting skiptir ekki úr 2 í 3,4

#5
Væri gott að fá mynd af þessum barka strákar svo maður geti fiktað í þessu líka ;)
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: 124 - sjálfskipting skiptir ekki úr 2 í 3,4

#6
ARG22 skrifaði:Væri gott að fá mynd af þessum barka strákar svo maður geti fiktað í þessu líka ;)
Er ekki með mynd en þetta er hægra megin á mótornum, fyrir neðan loftsíuboxið, efri barkinn er bensíngjafarbarki og svo er það þessi sem er fyrir neðan sem fer niður í skiptinguna.
Subaru Justy J12 1990
Mercedes-Benz 230E w124 '91 - Seldur
cron