Síða 2 af 2

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 30 Apr 2010, 22:45
frá BragiGuðna
200D-3.46/3.91
E220-3.67/3.07


Þegar ég skoða þessar tölur, og klára úr 2. bjórnum, þá er ég með eina getgátu varðandi þetta mál:

Ég man eftir að hafa lesið í aukahlutalista á mínum gamla W124 200D "off road package".(:D) Kanski hefur það þýtt að hann var með lægra drifhlutfallið (3.91).

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 30 Apr 2010, 22:48
frá Ásgeir Yngvi
Fann númerið á drifinu þökk sé góðum ábendingum frá ykkur ;)

Hérna er mynd af google sem aðstoðaði mig líka...

[img]http://www.w124performance.com/images/W ... tion07.jpg[/img]


...á drifinu sem núna er undir bílnum stendur 3,67. Á morgun tékka ég á gamla drifinu og drifi sem er undir 300 E bíl, en samkvæmt þessu hérna ofar í þræðinum ætti það drif að vera 3,07.
3,67 drifið verður þá líklega bara selt eða skilað ef það er í boði.

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 30 Apr 2010, 22:49
frá Ásgeir Yngvi
BragiGuðna skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:200D-3.46/3.91
E220-3.67/3.07
Þegar ég skoða þessar tölur, og klára úr 2. bjórnum, þá er ég með eina getgátu varðandi þetta mál:

Ég man eftir að hafa lesið í aukahlutalista á mínum gamla W124 200D "off road package".(:D) Kanski hefur það þýtt að hann var með lægra drifhlutfallið (3.91).
hahahahaha Benz með off road package !!! :lol: :lol: :lol:

Þvílíka vitleysan það :lol:

En bíllinn minn er tussu snöggur upp með þessu nýja drifi.

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 30 Apr 2010, 23:06
frá BragiGuðna
Ásgeir Yngvi skrifaði:hahahahaha Benz með off road package !!! :lol: :lol: :lol:

Þvílíka vitleysan það :lol:
Já mér fannst þetta líka alltaf rosalega kjánalegt, :) en ég sver að þetta stóð í aukahlutalistanum. Á þessum lista var einnig "extra capacity fuel tank". - 90 lítra tankur í 200D :D .

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 30 Apr 2010, 23:13
frá Ásgeir Yngvi
BragiGuðna skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:hahahahaha Benz með off road package !!! :lol: :lol: :lol:

Þvílíka vitleysan það :lol:
Já mér fannst þetta líka alltaf rosalega kjánalegt, :) en ég sver að þetta stóð í aukahlutalistanum. Á þessum lista var einnig "extra capacity fuel tank". - 90 lítra tankur í 200D :D .

haha já sæll ! Það er samt snilld ! Maður ætti að komast ansi marga km !

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 01 Maí 2010, 01:18
frá Killerboot
Ein pæling, ef þú ætlar að draga kerru á þessum bíl hentar þá 3.67 drifið ekki betur??

Ég er ekki viss en það getur verið að e220 sé með "digital" hraða mæli en ekki með barka, ef svo er ætti að vera lítið mál að setja í hann hraðamælabreyti til að ná úr honum skekkjunni.

Annars er beisli undir rauða bílnum hjá mér sem ég hafði ekki hugsað mér að nota. Þú getur fengið það fyrir sanngjarnt verð, veit samt ekki hvernær ég kemst í að rífa það undan.

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 01 Maí 2010, 08:45
frá Ásgeir Yngvi
Jú það er rétt hjá þér. En ég held að sjálfskiptingin myndi samt alltaf mótmæla því að draga mjög þunga kerru.

Ég er að skoða að kaupa mér eitthvað eldgamalt jeppadót með alvöru rellu til að draga hestakerruna þegar hún verður full hlaðin ;)

En Benzinn fær samt það hlutverk að draga tjaldvagn og jafnvel eitthvað þyngra. En mér finnst bara 3000 snúningar á 100 km hraða vera full mikið. Ég er útá landi og er alltaf að keyra útá vegi og því hentar 3,07 drifið mér mun betur. Það er auðvitað bara misjafnt hvað hentar mönnum.

Re: hraðamælir sýnir of hátt eftir að skipt var um drif ! ?????

Innsent: 01 Maí 2010, 08:46
frá Ásgeir Yngvi
Og ég er búinn að finna beisli, takk samt :)