Mótorinn farin að banka maður !

#1
Sælir kæru benzmenn og aðrir gáfumenn !
Nýverið hefur w210 230E 1995 ( ekin 255þús ) Bensinn minn tekið uppá því að banka og vona ég að það muni ekki leiða til hruns :lol:

Hljóðið kemur úr framenda mótorsins og virðist enganvegin tengjast snúningshraða mótors á nokkurn hátt. Hljóðið er talsvert hátt þegar það heyrist, líkt og það sé bankað með léttum hamri með ca 0,5 Sec millibili, hljóðið hverfur hinsvegar ef ég stilli útvarpið á vol 34 eða meira :mrgreen:

Það virðist engin regla vera á þessum óhljóðum, stundum kemur þetta ekki svo dögum skipti en aðra daga er þetta stanslaust en nær eingöngu þegar hann er á lítilli ferð eða kyrr.

Það eru ekki nema um 60þús km síðan það var skipt um keðju, strekkjara og gædu hjá Ræsi.

mbk
Bjarki Traustason


Re: Mótorinn farin að banka maður !

#7
Spurning hvort að keðjustrekkjarinn sé að standa undir nafni.
Hann er drifinn af olíuþrístingi.
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is