Startar ekki!

#1
Jæja, smá vandamál með bílinn.

Var einn daginn að keyra bílinn minn, allt í lagi með það, keyrði hann alveg nokkuð mikið (svona 100-150km) og drap svo á honum, svo svona 10 mín seinna þegar ég ætlaði að starta honum aftur startaði hann ekki! Það klikkaði bara í startarnum, hann skaut tannhjólinu út en sneri því ekki.
Það var þá fátt annað í stöðunni en að leggjast undir bílinn og skoða, komst að því að jörðin hafi rofnað. Festi hana á aftur og ætlaði að starta, bíllinn rafmagnslaus, ég hlóð inná geyminn, og ætlaði þá að fara að starta aftur, þá klikkaði aftur í honum.
Ég átti annan startar (úr eldri bíl og sjálfskiptum) skellti honum í og þá skrollaði hann bara á swinghjólinu (snerist semsagt).
Næst var þá að blanda þeim saman. Sá gamli var illa farinn, kolin að verða búin og vantaði á hann alla smurningu. Notaði sumsé bara gírinn úr honum. Skellti í, bíllinn reyndi að snúa en þá var eins og vantaði á hann rafmagn, aftur. Svo ég hlóð geyminn og þá skýtur hann bara út og snýr ekki! Er að verða svolítið pirraður á þessu vandamáli.
Réttast að taka það fram að ég prófaði startarann (eftir breytingar) með rafgeymi og þá skaut hann tannhjólinu út og snéri því.
Ég veit að það er búið að skipta um swinghjól og rafkerfi í bílnum, skilst að það sé úr eldri bíl og gert af einhverjum hér á spjallinu.
Númerið er [MV-556] svo að þeir sem skiptu um rafkerfi viti um hvaða bíl ræðir.
Bíllinn er 1990 árgerð, beinskiptur 2,3l mótor w124 týpa.

Hefur einhver hérna minnstu hugmynd um hvað er í gangi, gæti það verið skítug tengi, slæm jörð?

Með fyrirfram þökk:
Haukur Árni


Mercedes Benz 280TE S123 :mercedes:
Mercedes Benz 250TD(I) W124 :mercedes:
"Suzuki Vitara" 1992 33"

Re: Startar ekki!

#2
Þegar það smellir í startara hefur það alltaf verið útaf skort á rafmagni.

Hugsanlega er rafgeymirinn hjá þér ónýtur, eða straumleið frá mótor.
M.v. að kapallinn undir bílnum hafi rofnað myndi ég íhuga að skipta honum út, getur líka prófað að mæla leiðnina frá - pól geymisins og á boddý og mótor (ohm mæla það)
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Startar ekki!

#3
Getur verið segulrofinn á startaranum, fóðringar, skítugur kolhringur :? Farðu með báða startarana í PG Þjónustuna á Eldshöfða 5, hann reddar þessu fyrir þig, afsláttur fyrir félaga Mercedes Benz klúbbs Íslands :wink:
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

Re: Startar ekki!

#4
Í það fyrsta prófaðu að tengja startkapal beint frá mínus á geymi og á startarahúsið sjálft eða boltahausana sem halda startaranum, ef hann snýr vélinni ekki við þetta þá skaltu rífa hann úr og fá þér góðan trékubb, rafgeymi og startkapla, settu kvikindið í skrúfstykki og festu hann vel, tengdu hann og láttu hann snúast á fullu, komdu kubbinum þannig fyrir að þú getir þvingað hann frá borðplötunni á hjólið þannig að startarinn fái gott álag, alls ekki stinga kubbinum samt inn í húsið!! það er bannað !! aðeins þvinga hann að hjólinu og ef hann snýst á fullu þó að rjúki úr spýtunni þá er startarinn í góðu lagi, þér er óhætt að þvinga hann vel !! Hann getur nefnilega snúist létt og fínn uppá borði en um leið og hann fær álag við að reyna að snúa vélinni þá drullar hann á sig sem er oftast nær lélegt samband á kolum, t.d hálf föst, lélegur kolahaldari eða þá fóðringar sem þvinga hann.......bara svona til að prófa eitthvað.. :D