Uppgerð á vatnsdælu

#1
Er einhver hér á landi sem er góður í að gera upp vatnsdælur?

Mér til mikillar skelfingar þá sá eg að það var farið að drjúpa innanúr dælunni hjá mér í 6.3. Ég fékk hálfgert hjartstopp þegar ég uppgötvaði þetta, því ég minntist þess að hafa séð skrif á M100 spjallrásum um svívirðilega verðlagninu á þessum dælum. Reyndar er ég búinn að komast að því að ég get keypt svona dælu, uppgerða, á um 300$ eða um 40þús með sendingarkostnaði og vaski hingað komin. Ég er búinn að skoða þverskurðarmyndir af dælunni og sé að þetta er líklega fóðring fyrir aftan vinduna sem er farið að leka meðfram. Henni er í raun þrýst stöðugt með gormi utan í vinduhjólið aftanfrá og er sjálfsagt orðin slitin. Það ætti ekki að vera óskaplega mikið mál fyrir fagmann að gera við þetta.

Hvað segir doktorinn?


Sveinn

#2
Hér kemur doktorsálitið

Það er yfirleitt ekki mikill vandi að lækna svona dælu. Það er reyndar háð því að maður fái í hana "kolið", en kolið er skífan eða planið sem gormurinn þrýstir á. Það eina sem er vandasamt er að ná sjálfu dæluhjólinu af án þess að brjóta það, en ef það tekst og kolið fæst þá er eftirleikurinn yfirleitt auðveldur.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#3
Ætli það sé hægt að koma örmunum á púllara á bakvið dæluhjólið? Er þetta ekki úr einhverri steypu sem brotnar án fyrirvara? Er einhver snillingur hérlendis í þessu sem þú veist um Rúnar? Einhver vanur. Málið er ef hjólið brotnar, þá gæti ég verið í djúpum skít, því þá þarf ég að kaupa dælu á 80þús kall. Ég veit ekki hvort hægt sé að kaupa nýtt dæluhjól sérstaklega. Ég get fengið dælu á 300$ með því að láta hina uppí annars um 700$!!!
Sveinn

#4
Ég held að það sé nú engin expert í þessu en aðalmálið er að búa sér til eithvað sem kemur utanum nánast allt hjólið þegar það er pressað af. EKKI NOTA DRAGKLÓ því þá brotnar hjólið. Ég hef tvisvar gert svona við dælu úr Ponton og gengið vel í bæði skiptin. Það er líka spurning ef þú átt þverskurðarmynd að sjá hvernig öxullinn kenum í hjólið og dæluna. Oft er hægt að pressa hann í gegnum dæluna og þá þarf ekki að taka hjólið af.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#5
Hvar fær maður annars svona fóðringar? Eru þetta einhverjar svona universial fóðringar sem hægt er að kaupa víða, eða er þetta eitthvað sem aðeins er hægt að fá hjá MB birgja?
Sveinn

#6
Líklegast hjá MB varahlutasala. Sumar dælur er hægt að fá sett í eins og t.d. í vörubílum þar sem dælurnar eru á um 50-80.000 krónur. Hefurður talað við þá hjá Ræsi hvort að það er hægt að panta varahluti í dæluna ?
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Mercedes-Benz skrifaði:Ég held að það sé nú engin expert í þessu en aðalmálið er að búa sér til eithvað sem kemur utanum nánast allt hjólið þegar það er pressað af. EKKI NOTA DRAGKLÓ því þá brotnar hjólið. Ég hef tvisvar gert svona við dælu úr Ponton og gengið vel í bæði skiptin. Það er líka spurning ef þú átt þverskurðarmynd að sjá hvernig öxullinn kenum í hjólið og dæluna. Oft er hægt að pressa hann í gegnum dæluna og þá þarf ekki að taka hjólið af.
Það er örugglega hægt að losa öxulinn að framan og draga hann út með hjólinu. Mér fannst bara eitthvað svo mikið mál að þurfa að tæta alla dæluna. En það er kannski bara auðveldara. Ég held meira að segja að ég hafi séð lýsingu það sem mælt var með að þetta væri gert svona. Hin aðferðin er einfaldari í eðli sínu, en greinilega erfiðari.

Þessa lýsingu fékk ég hjá einum M100 sérfræðinginum;
"The pump can be rebuilt quite easily by the experienced mechanic. Most pull the impellor off, but if the shaft is OK, after removal from the engine, removing the front pully allows the pump to be dismantled from the front. This avoids the risk of damaging the cast impellor. The bearing is generic, and is the same as the later 450 engine. I believe the seal is also a generic MB part. SKF can supply the correct bearing, but I'm not sure about the seal. The parts are quite inexpensive - especially compared to a new pump. If you do the repair yourself, ensure that the interference fit of the pully on the shaft is both accurate & snug, as a loose pully will allow the shaft to move backwards creating a leak past the seal."

Hér er síðan þverskurðarmynd;
[img]http://members.fortunecity.com/benz/waterpump.JPG[/img][/i]
Sveinn

#8
Það er ekki að sjá að það sé svo mikið mál að pressa þessa dælu í sundur því að það þarf ekki að taka dæluhjólið af fyrst.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#9
Já, mér sýnist það vera miklu betra losa öxulinn framanfrá og draga hann út að aftan með dæluhjólinu.

Sami maður og sendi mér lýsinguna hér að ofan var að senda þetta. Þetta passar vel við þær hugmyndir sem ég hef um þetta núna;

Sveinn,

I understand from others that the force required to remove an aged cast impeller can result in it being damaged, which is why I suggested working from the front & removing only the pully from the front & taking the shaft assembly out the back of the pump. If the pump is leaking, it needs to be repaired with new bearings & seal. The bearing is very cheap - my last one was about AUD$12. The seal was more, but not greatly. Removal of the pump from the car is technically simple, but appropriate workshop tools are needed to remove and accurately reinstate the pully and parts. Care in reassmbling is crucial as having a leak return immediately is very annoying. An overtight belt can accelerate bearing wear, resulting in lateral movement & rapid seal wear. Overtight belts can also cause the pully to creep forward on the shaft allowing the shaft to float to the rear causing major leakage past the seal.

Regards Michael


Ég ætla að tala við þá í Ræsi og sjá hvort þeir geti útvegað mér a.m.k. fóðringuna og e.t.v. legurnar líka. Þegar ég er síðan kominn með þetta í hendurnar, þá ætla ég að rífa dæluna úr og sjá hvað langt ég kemst sjálfur. Ég fæ svo kannski doktorinn lánaðan í ráðgjöf eða bjarga málunum ef ég er komin í ógöngur, er það ekki? Er eitthvað mál að skipta um legur í svona dælum?

Mig grunar reyndar að orsökin fyrir þessum vandamálum (eða hluti af henni) sé of strekktar reimar. Manstu eftir þegar við vorum að koma bílnum í gang fyrst, þá rakst viftureimin utan í kveikjuflýtirinn sem stendur niður úr kveikjunni (sem snýr örugglega vitlaust). Við strekktum á reiminni til að minnka slagið á henni með miklum erfiðismunum vegna álkulegrar hönnunar á strekkibúnaðinum. Er mál að snúa kveikju í 180 gráður eins og ég held að þurfi að gera hjá mér? Það er kannski rétt að ráðast á vandamálið þar sem það á upptök sín.
Sveinn