Tektyl

#1
Hvar kaupir maður Tektyl í dag? Svona þunnfljótandi og/eða grjótvörn. Áður fékkst þetta í Bílanaust og víðar, en nú virðist þetta vera munaðarvara sem hvergi er fáanleg. Þetta fékkst meira að segja á öllum bensínstöðvum hér áður, en í dag eru þessar sömu bensínstöðvar hvorki fugl né fiskur og ekkert gaman að fara þar og skoða bíladót, verkfæri og svoleiðis því þar fæst ekki þverfótað fyrir matvörum, snakki og pulsutilboðum. Ekkert varið í að skoða það á meðan maður bíður. Heimur versnandi fer.


Sveinn

#3
Hjá Orku-Snorra G Guðmundsyni í gamla Bifreiðaeftirlitshúsinu á Bíldshöfða er selt efni með nafninu Tectyl. Athugið að þetta fræga orð Tectyl er vörumerki en ekki eitthver sérstök gerð af ryðvörn. Þeir hjá OSGG selja ýmsar gerðir og útgáfur af ryðvörn frá hinu Íslandsþekkta fyrirtæki Tectyl, sem er hluti af Valvoline group olíu og smurefnaframleiðandanum, enda er Tectyl fyrir ryðvarnarstöðvar flutt inn í tunnum merkt Valvoline. Það er til mörg efni sem eru til jafns við þetta efni eins og t.d. Teroson sem Olíufélagið hefur umboð fyrir. Tectyl er þó það efni sem sennilega hefur fest sig mest í sessi hér á landi enda tala mjög margir um að "tektila" bíla þegar átt er við að ryðverja þá.

Þeir sem eru fyrir þekkt vörumerki eins og Mercedes-Benz, Tectyl og Coca-Cola ættu að veðja á Orku-Snorra G. (ef þeim vantar Tectyl)
Seinast breytt af Mercedes-Benz þann 02 Okt 2003, 00:36, breytt 1 sinni alls.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#4
Mercedes-Benz skrifaði:Þeir sem eru fyrir þekkt vörumerki eins og Mercedes-Benz, Tectyl og Coca-Cola ættu að veðja á Orku-Snorra G.
Ég hélt að Ræsir væri með Mercedes-Benz
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101

#5
Það var nú átt við leit á þessu efni til ryðvarnar

Þú kanski áttaðir þig ekki á því að Vífilfell er með Coca-Cola HAHAHAHA
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Æi, ég var í einhverju pirringskasti þegar ég skrifaði þetta. Það virtist vera ómögulegt að fá svona ryðvarnardrullu í bænum, hvort sem það hét Tectyl eða einhverju öðru nafni. Ég fann síðan fyrir rest tvær dollur á Olís bensínstöðinni hjá Glæsibæ. Ég stend samt enn við kenningu mína um hnignandi bensínstöðvamenningu hérlendis þar sem bílavörur víkja fyrir dömubindum.
Seinast breytt af sveinn þann 02 Okt 2003, 22:00, breytt 1 sinni alls.
Sveinn

#8
Þú þarft ekkert að bakka með þetta... Buxnainnlegg eru mun vinsælli en tectyl.

Tímarnir eru bara að breytast og bensínstöðvarnar með. Eina krafan sem ég geri er að allavega ein stöð hafi opið kengi og selji allt í svona bílavörum sem manni kann að vanta.
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#9
Bebecar skrifaði:Þú þarft ekkert að bakka með þetta... Buxnainnlegg eru mun vinsælli en tectyl. Tímarnir eru bara að breytast og bensínstöðvarnar með.
Já, vissi það ekki, annars hefði ég nú keypt dömubindi strax og límt þau undir bílinn. Það sagði mér þetta bara enginn. Já, svona er þetta, maður fylgist ekki með.
Sveinn

#10
Það kann enginn af nútímakinslóðinni að bjarga sér í bílamálum eins og við. Þetta skopparalið kaupir bara nýja dollu eða fær hana á leigu og svo er bara snattað þar til eitthvað stoppar. Þá er tíkinn við svo búið talin útkeyrð, og ef ekki er hægt að selja hana fyrir slikk að þá er góssinu bara fleygt. Við erum að verða síðustu móhíkanarnir í þessu gamla dóti og bráðum þarf að fara að varðveita okkur ef bílarnir eiga að varðveitast. HAHAHAHAHAHa
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)