Re: Töpplúga opnast ekki

#2
Það gæti verið einhver aðskotahlutur í rennunni hjá þér þarna vinstra megin eða rennan orðin slitin. Hefurðu prófað að ýta lauslega á eftir lúgunni með hendinni?
Atli skrifaði:stundum hættir þetta þegar ég opna og skelli svo hanskahólfs lokinu
Ég átti einu sinni svona VW bjöllu sem var með vírahrúgu undir mælaborðinu sem ég hristi alltaf svolítið þegar eitthvað bilaði. Það fór undantekningalaust allt í lag. Jafnvel pústið og sprungið dekk!

Annars held ég að þú eigir kollgátuna þegar þú nefnir blikkpunginn fyrir öryggisbeltaljósið.


Sveinn
cron