Köld miðstöð

#1
Góðan daginn,

Vandamálið hjá mér er að miðstöðin er alltaf köld, skiptir engu hver vinnsluhiti vélarinnar er.
Þetta byrjaði svona í morgun, vinnsluhit vélarinnar reis og reis þangað til að það sauð á honum. Síðan fór hitinn í eðlilegt horf, en miðstöðin var alltaf jafn köld, hefði alveg eins getað keyrt með alla glugga opna ( sama hitastig, sem betur fer var ég vel klæddur )

Með von um skjót svör og hugmyndir
Andri


#2
Það hefur frosið á kerfinu hjá þér. Það sama kom fyrir mig í frostinu um daginn (fór í -11°c), athugaðu með frostlöginn hvað bíllinn þolir í frosti...
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

#4
Ef þú ert heppinn (eins og ég var) þá er það nóg, en ef það hefur verið lítill sem enginn frostlögur hjá þér á kerfinu þá geta skemmdir verið víða þar sem kæli vatn er, svo sem miðstöðvar element, vatnskassi, og jafnvel vélarblokkin sjálf skemmd. Flestar vélar eru með svokallaða "frost tappa" sem eru staðir sem gefa sig ef frost verður mikið til að skemmdir verði sem minnstar og er þá hægt að pressa þá aftur í (þarf kunnáttu menn í það). Enn þú gætir verið heppinn með lágmarks skemmdir. þarf bara að athuga hvort mótor lekur kælivatni og ef það lekur kælivatn t.d. inn í bílinn (miðstöð).
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

#5
Frostlögurinn er eitt af því sem við íslendingarnir trössum allt og mikið á, það á að skipta um hann reglulega.
Bæði vegna frostvarnar og tæringarvarnar, en eiginleikar frostlagarins minnkar með tímanum. :wink:

vona að þetta hafi sloppið fyrir horn hjá þér, en ég mæli með að þú skiptir frostleginum út.
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#6
Það er því miður alltof algengt að menn trassi að skipta um frostlaug á bílum sínum hér á landi. :(
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#7
Þetta leystist með því að bæta á hann frostlegi. Var heppinn í þetta skipti, vonandi reynir ekki á þessa heppni aftur. :)
Greinilegt líka að það var ekki nægilegur vökvi á honum, þannig að ég bætti úr því líka.

#8
Setja í reminder í símann héreftir: Skipta um frostlög á 2 ára fresti, að minnsta kosti.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#9
andrz skrifaði:Setja í reminder í símann héreftir: Skipta um frostlög á 2 ára fresti, að minnsta kosti.
Meðalsími í Evrópu er hannaður til að endast í ár.


Ég persónulega var að hugsa um að á E420 þá verður skipt um kælivatn og olíu á drifi, sjálfskiptingu (og vél í leiðinni) árlega, en allt saman athugað í hvert skipti sem hann fer í smurningu.
Sjálfskipti olíu er best að athuga í hvert skipti bara, talað um 50 þús. km á skiptingunni en ég myndi hreinlega skipta oftar (athuga reglulega bara).
Líka að gera allt ofan talið kostar um 15 þús. m. vinnu og varahlutum frá öskju.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
cron