Mercedes Benz 190E 2.0

#1
Ætli það sé ekki best að hafa þennan hérna á réttum stað :)

Um er að ræða 1992 módelið af 190E

Smá tækniupplýsingar

Sílendrar: 4
Ventlar: 8
Slaglengd: 89,0 / 80,2 mm
Rúmmál: 1996 cm3
Þjöppun: 9,1
Afl: 126 hö við 5300 snúninga/mín.
Tog: 175 Nm við 3500 snúninga/mín.
Bensíntankur: 55 lítrar
Hámarkshraði: 190 km/klst
Hröðun 0-100 km/klst 11 sek
Eyðsla 100km/l:
innan bæjar 11-13 lítrar
Lengd: 444,8 cm
Breydd: 169,0 cm
Hæð: 137.5 cm
Þyngd: 1730 kg
Eigin þyngd: 1180
Skipting: 4 gíra sjálfskipting

Ég fékk bílinn í sumar og var hann þá í mjög annarlegu ástandi (Aðalega ryð og margra ára skítur)

Það sem ég hef gert fyrir bílinn:

-Mössun
-Ný stýring fyrir vinnuþurku
-Allt ryð tekið í gegn og upprætt
-Ný halda fyrir húddlok
-Hreinsaður að innan
-Nýr miðstöðvarmótor
-Skottið tekið í gegn(ryð og skítur)
-Vatnskassahosa
-Strekkjaracomplett fyrir viftureimina
-Kerti

Dagleg þrif :)

Það sem er á dagskrá í vetur og vor:

-17" amg felgur
-Nýtt grill
-Smókuð afturljós
-Sportline fjöðrun
-Sportline stýri
-Léttustu filmur (Hugleiðingar)
-Geislaspilari og hátalarar

Bíllinn er ekinn rúmlega 300.000 og er í frábæru ástandi vélarlega miðað við þessa keyrslu, Sprækur og fínn. Eina sem mætti laga og verður gert í vetur eru smávægilegar gangtruflanir eftir rigningasama nótt.

Nokkrar myndir

[img]http://i11.tinypic.com/6sq9lw3.jpg[/img]

[img]http://i4.tinypic.com/7y834b5.jpg[/img]

[img]http://i13.tinypic.com/6z74dur.jpg[/img]

[img]http://i14.tinypic.com/86s4l88.jpg[/img]

[img]http://i3.tinypic.com/6l0j12t.jpg[/img]

[img]http://i8.tinypic.com/6yk0obr.jpg[/img]

[img]http://i13.tinypic.com/85vgohu.jpg[/img]

[img]http://i18.tinypic.com/834dgzr.jpg[/img]
Seinast breytt af messinn þann 29 Sep 2008, 01:58, breytt 16 sinnum alls.


Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#2
lýtur mjög vel út hjá þér :) gangi þér bara vel með þennan :Ð
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

#3
flottur reyndist mér vel.
W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

#4
Er Búinn að ákveða á fá mér amg felgur eins og á myndunum hérna og finnst hann lýta freekar vígalegur á þeim 8)

En ég var að spá í hvort ég ætti að samlita hann og breyta kannski eitthvað afturljósum, hvað finnst ykkur stjörnumönnum?

Klikkið á myndirnar til að fá þær í betri upplausn :wink:

Venjulegur, amg.
[img]http://i12.tinypic.com/85z90f8.jpg[/img]

Breytt afturljós og samlitun
[img]http://i6.tinypic.com/8euynom.jpg[/img]
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#5
Bara ekki breyta honum þannig að hann verði alveg hvítur (þ.e. stuðari líka) því að þá verður þetta algjör rjómabolla :roll:

En annars líst mér ágætlega á báðar útfærslur, finnst ljósin reyndar á neðri myndinni fallegri :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

#6
Benni skrifaði:Bara ekki breyta honum þannig að hann verði alveg hvítur (þ.e. stuðari líka) því að þá verður þetta algjör rjómabolla :roll:

En annars líst mér ágætlega á báðar útfærslur, finnst ljósin reyndar á neðri myndinni fallegri :wink:

RjómaRjóma :)

Nei einmitt. Það var nú aldrei inní myndinni að samlita hann allan en ég er svo enn að reyna melta það hvort ég eigi að láta að sprauta hann að neðan :wink:
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#7
já ég bara er svo feginn að þú sért búinn að taka þennan bíl og ÞRÍF'ANN !!!!!

Vá hvað hann var skítugur og ógeðslegur alltaf :shock: (í seinni tíð)

Þetta er bara allt annað :D
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#8
Ótrúlega flottur bíll... Samlita þetta svarta í sama lit og neðri hlutinn er semsagt grár og skella undir hann 17" AMG felgum og þá ertu mjög góður. Líst betur á neðri ljósin :)

Kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

#9
Ásgeir Yngvi skrifaði:já ég bara er svo feginn að þú sért búinn að taka þennan bíl og ÞRÍF'ANN !!!!!

Vá hvað hann var skítugur og ógeðslegur alltaf :shock: (í seinni tíð)

Þetta er bara allt annað :D

Já hann var ansi skítugur þegar ég fékk hann. En sem betur fer var því strax kippt í liðinn :)


Björgvin skrifaði:Ótrúlega flottur bíll... Samlita þetta svarta í sama lit og neðri hlutinn er semsagt grár og skella undir hann 17" AMG felgum og þá ertu mjög góður. Líst betur á neðri ljósin :)

Kveðja

Takk takk. Veit nú ekki með að samlita stuðarann, En hann lookar allavega bara vel svona samlitaður 8) (þaes eins og á neðri myndinni)
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn