Síða 2 af 4

Innsent: 04 Nóv 2007, 22:31
frá Logi
Benzari skrifaði:Til hamingju Logi.

SLS demparana fékk ég ódýrast í Fálkanum. Auðvitað geturðu líka skipt í "venjulegt" setup eins og þú gerðir á M5.

Hlakka til að sjá gripinn.
Takk fyrir það.

Tala við Fálkann á morgun. Ætla að halda mig við SLS!

Innsent: 05 Nóv 2007, 10:13
frá Reynir Ari
Flottur bíll, til hamingju

Innsent: 05 Nóv 2007, 15:03
frá Gunnar Þór
Minni í farþegasæti - er það ekki sjaldgæft?

Gaman að sjá betri myndir af þessum - Geðveikir bílar!!!

Innsent: 05 Nóv 2007, 17:04
frá valdi
hvíti 320ce bíllinn sem er á bílasölu reykjavíkur(já hann er kominn aftur) er með fjórum eða 5 minnum í báðum sætum

Innsent: 05 Nóv 2007, 18:00
frá Reynir Ari
valdi skrifaði:hvíti 320ce bíllinn sem er á bílasölu reykjavíkur(já hann er kominn aftur) er með fjórum eða 5 minnum í báðum sætum
kominn aftur ? er þessi bíll að skipta um eigendur á vikufresti eða ?

Innsent: 05 Nóv 2007, 18:17
frá Logi
Bíllinn er kominn inn í skúr og verður hækkaður upp! Byrja að aftan þar sem dempararnir eru of langir fyrir H&R gormana. Ætla að setja þriggja punkta gormagúmmí og sjá hvernig það kemur út fjöðrunarlega séð. Líklegast hækkar hann upp um 1 cm...

Síðan þarf nauðsynlega að hækka hann upp að framan, þar verður farið í þriggja eða fjögura punkta gúmmí! Getur maður gert það sjálfur með venjulegum gormaklemmum, veit það einhver???

Síðan verður bónað og sjænað og vetrardekkin sett undir.

Innsent: 05 Nóv 2007, 18:36
frá basten
Til hamingju með þennan!!!
Var búinn að frétta af honum :wink: Lítur afskaplega vel út, af myndunum að dæma.
Ekki skemmir heldur fyrir hversu vel búinn hann er.

Fínt að gera skipt á milli BMW og Benz án fordóma 8)

Innsent: 05 Nóv 2007, 20:34
frá Hlynzi
Virkilega flottur.

Það er nú fínt að það bætist örlítið í E420 flotann hérna.

Innsent: 06 Nóv 2007, 01:24
frá valdi
fara vonandi aðkoma fleiri,það dugir ekki að láta sig bara dreyma 8)

Innsent: 07 Nóv 2007, 00:09
frá valdi
reynir ari.... já hann er kominn aftur,sá sem á hann núna tók hann nú víst uppí og setti hann bara á sömu bílasöluna aftur,núna er sett á hann 980 í staðinn 990 og hann erkeyrður 3000 km meira en síðast og eigandinn vill ekki minna en 800 fyrir hann,spurðist fyrir á bílasölunni