W124 E420 '94

#1
Jæja þá kom að því, loksins búinn að kaupa mér Mercedes. Búinn að eiga nokkra BMW, en hef alltaf verið veikur fyrir MB líka og núna var ákveðið að stökkva á það.

Upphaflega var planið að fara í W124 E320T eða E280T, jafnvel E220T. Eitthvað fór ég af leið og endaði á að fara í E420 :lol:

Um er að ræða E420 sem kom af færibandinu í apríl 1994. Bíllinn kom úr tolli í gær og sá Smári um að kaupa bílinn og senda heim. Kann ég honum bestu þakkir fyrir viðskiptin.

Helstu upplýsingar:

Akstur 167.000 (góð þjónustubók frá upphafi fylgir).

Svartur nr 199, samlitur, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, original 17" AMG 7,5 að framan (225/45) og 8,5 að aftan (245/40).

Svart sportline leður, leðurstýri, auto miðstöð, rafmagn og minni í báðum framsætum, rafmagn í stýri og rafmagnsgardína í afturglugga.

Hleðslujafnari og H&R gormar.

Lítur vel út og virðist vera í góðu standi.

Myndir sem teknar voru í skúrnum áðan, betri koma síðar:
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45772- ... 04+006.jpg[/img]
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45769- ... 04+004.jpg[/img]
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45781- ... 04+022.jpg[/img]
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45784- ... 04+009.jpg[/img]
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45775- ... 04+008.jpg[/img]
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/45778- ... 04+019.jpg[/img]

Kveðja,
Seinast breytt af Logi þann 04 Nóv 2007, 00:49, breytt 1 sinni alls.


#3
þessi er helv. nettur :shock: væri alveg tilí þennan 8)





(vonandi bætist í undirskriftina fljótlega) :twisted:


hvað borgaðirðu fyrir bílinn úti og hvað var þetta mikið þegar hann var kominn hingað með öllu? ef þú þá vilt segja það :roll:
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

#6
Til hamingju með fallegan benz og endilega komdu með fleirri myndir þegar buið er að bóna og bíllinn úti :D
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#8
Takk fyrir, ég er virkilega ánægður með hann!

Á stefnuskránni er að hækka hann aðeins upp, að framan allavegana, og mig grunar að ég þurfi að skipta um dempara að aftan.....sem er örugglega ekki ódýrt þar sem um hleðslujafnara er að ræða

Þetta var ekki ódýr bíll, enda um gott eintak með góða sögu að ræða. Vil ekkert fara út í það neitt nánar. En ég hefði pottþétt getað fengið ódýrari bíl hérna heima! :?

#9
Til hammó.

Þessir bílar eru bæði fallegir og skemmtilega aflmiklir. 8)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#10
Til hamingju Logi.

SLS demparana fékk ég ódýrast í Fálkanum. Auðvitað geturðu líka skipt í "venjulegt" setup eins og þú gerðir á M5.

Hlakka til að sjá gripinn.
Teddi :mercedes: