Svona hlutir eru með öllu óþolandi
Hafi engu verið stolið og bara gengið á bílinn tel ég nú samt nokkuð víst að þarna er einhver að verki sem að telur sig eiga eitthvað sökótt við þig... varstu eitthvað að vesenast í annara manna konum
Ég hef sjálfur verið í þessari stöðu, ég átti BMW E39 523i sem að ég eyddi heilum vetri í að gera upp og hafa fínan.. málaði bílinn í öll föls og gerði hann eins góðan sem nýjan...
Einungis til þess að koma að honum nokkrum vikum seinna beygluðum, rispuðum, með brotna rúðu og með rifið aftursæti eftir hnífslæti...
Ég var alveg bótalaus afþví að bíllinn var í geymslu þegar að verknaðurinn átti sér stað...
Uþb ári seinna þegar að ég var síðan búinn að nostra aftur við sama bíl... gerðist þetta aftur...
Það liggur við að manni langi að fjárfesta í öryggishvelfingu
