Síða 5 af 41

Innsent: 08 Maí 2007, 12:36
frá basten
Fallegur bíll hjá þér!!! Flott upgrade, eina sem ég get sett úr á er spoilerinn á honum.

Hreinlega þoli ekki spoilera á þýskum bílum (nema svona nybbur eins og eru aftan á M5 og AMG bílunum). En það er bara mitt álit og ég er SÉRVITUR :wink:

Innsent: 08 Maí 2007, 13:19
frá Gummi Kei
basten skrifaði:Fallegur bíll hjá þér!!! Flott upgrade, eina sem ég get sett úr á er spoilerinn á honum.

Hreinlega þoli ekki spoilera á þýskum bílum (nema svona nybbur eins og eru aftan á M5 og AMG bílunum). En það er bara mitt álit og ég er SÉRVITUR :wink:

gæti ekki verið meira sammála, af með þennann spoiler.

Innsent: 08 Maí 2007, 14:37
frá Ásgeir Yngvi
Já það er bara þannig með þessa blessuðu fagurfræði strákar. Það er enginn með sama smekk, svo einfalt er það. Það sem einum finnst vera geðveikt flott finnst öðrum vera viðbjóður.

Innsent: 12 Maí 2007, 21:04
frá Hlynzi
Myndir teknar af Jón bjarna.

[img]http://farm1.static.flickr.com/212/4941 ... 46d6_b.jpg[/img]

Innsent: 17 Maí 2007, 13:26
frá Halldór Björn
Ég sá þennan bíl í gær og þessi bíll er mjög fallegur, mátt vera stoltur af þessum bíl hjá þér :D

Innsent: 20 Maí 2007, 18:29
frá Hlynzi
Vinur minn tók fyrir mig betri myndir, nenni ekki að henda þeim öllum inn en hérna eru 2 góðar, bíð svo spenntur eftir nýjum framljósum sem fá xenon með sér.


[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/e4207.jpg[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/e4206.jpg[/img]

..

Innsent: 20 Maí 2007, 18:43
frá Gummi Kei
ég verð nú bara að segja að þetta er orðinn mjög flottur bíll að sjá 8)

Innsent: 20 Maí 2007, 21:43
frá JBV
Þessi bíll er orðinn virkilega flottur hjá þér Hlynzi. En ég mæli með því að þú gerir eins og "jon" nafni minn á Akureyri gerði fyrir sinn C Benz, að splæsa á nýjar númeraplötur. :wink:

Innsent: 20 Maí 2007, 22:35
frá Hlynzi
JBV skrifaði:Þessi bíll er orðinn virkilega flottur hjá þér Hlynzi. En ég mæli með því að þú gerir eins og "jon" nafni minn á Akureyri gerði fyrir sinn C Benz, að splæsa á nýjar númeraplötur. :wink:
Þú er enganveginn einn um þessa athugasemd, ég reyni að muna að panta nýjar og svo fá ljós.
Þetta kemur allt með kalda vatninu.

Innsent: 20 Maí 2007, 22:37
frá JBV
Efast ekki um það :wink: