Síða 40 af 41
Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 21 Júl 2014, 14:52
frá Hlynzi
Þá er komið skrið á eilífðarverkefnið aftur eftir langt og gott hlé, um daginn var keypt önnur vél í bílinn, þetta er 5.0 Lítra M119.970 (með elektrónískri kveikju) svo á eftir að athuga hversu vel þetta mun ganga að setja þetta í bílinn þar sem þetta er ekki nákvæmlega eins og forverinn.
En vinna hefst við blokk og hedd, hreinsa þetta og flest allir hlutir verða settir nýjir í vélina.

Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 21 Júl 2014, 20:20
frá JBV
Þetta er spennandi dæmi. Þú færð alla mína hvatningu til að þetta verði að veruleika.

Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 22 Júl 2014, 13:52
frá valdi
þetta verður snilld! verð að fá að kíkja á þig í skúrinn eitthverntímann aftur að skoða þegar þú byrjar á þessu

Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 23 Júl 2014, 00:49
frá Benni
Frábært
Þetta er sennilega lengsti þráðurinn undir bílar félagsmanna

Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 23 Júl 2014, 11:18
frá Hlynzi
Benni skrifaði:Frábært
Þetta er sennilega lengsti þráðurinn undir bílar félagsmanna

Ætli það ekki, einnig er hann kominn með 67 þús. flettingar. Ég hugsa að uppfærslur verði aðeins póstað hér og linkum á þær á facebook.
En heddin fóru í plönun og ventlaslípun í gær.
Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 24 Júl 2014, 08:09
frá Alpina
þetta er bara cool
Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 10 Ágú 2014, 21:44
frá Hlynzi
Jæja, þá voru bæði heddin send til vélsmiðjunnar Kapp, allt rifið í spað, ventlar slípaðir og heddin plönuð, svo þrifið og skipt um ventlaþéttingar.
Nú er vélin svo komin í næsta skref þar sem samsetning er hafin og það fer nánast allt nýtt inn í mótorinn.
Keypti allt nýtt hjá Kistufelli, (stangarlegur, tímakeðjusett, heddpakkningar, soggreinaþéttingar, stimpilhringi og fl.)
Þessi vél verður endurnýjuð í botn og ætti nú að verða ansi áreiðanleg.
Re: E420 - - AMG update (Ný vél!! 5.0L )
Innsent: 11 Ágú 2014, 00:53
frá valdi
vel gert hjá þér kall !
verð að kíkja á þig þegar ég á leið í bæinn

Re: E420 - - AMG update (uppgerð á 5.0 vél að hefjast!)
Innsent: 26 Feb 2015, 12:57
frá Hlynzi
Nú fara síðustu varahlutirnir að berast í 5.0L M119 vélina.
Samsetning á henni byrjar um leið og þeir koma.
Ég reyni að hafa eins mikið af myndum og hægt er, jafnvel myndbönd líka.
Re: E420 - - AMG update (uppgerð á 5.0 vél að hefjast!)
Innsent: 26 Feb 2015, 15:51
frá Benni
"Like" á það
