Síða 32 af 41

Re: E420 - - AMG update (NÝTT - Myndir af málun!)

Innsent: 16 Maí 2010, 18:41
frá Reynir Ari
Snillld 8)

Re: E420 - - AMG update (NÝTT - Myndir af málun!)

Innsent: 16 Maí 2010, 18:58
frá Sergio
Bara flott! svo þarft þu drifa þig til Íslands svo ég fái sitja í

Re: E420 - - AMG update (NÝTT - Myndir af málun!)

Innsent: 16 Maí 2010, 20:18
frá aroningi
Lítur út fyrir að vera bara vel gert. Djöfull verður gaman að sjá hann svo einhvertíman tilbúinn.

Fyndir á mynd nr. 7 það er eins og þetta skilti "Hætta! sandfok" sé á milli framsætana :D

Re: E420 - - AMG update (NÝTT - Myndir af málun!)

Innsent: 16 Maí 2010, 20:32
frá Ásgeir Örn
Þetta er alveg geðveikur bíll, hlakka til að sjá hann tilbúinn.

Re: E420 - - AMG update, kominn til baka

Innsent: 07 Júl 2010, 18:10
frá Hlynzi
Jæja, bíllinn er kominn á númer og stendur inní skúr.

Var áðan að láta setja glænýja 18" barða á AMG felgurnar og svo fer ég á morgunn í það að setja ljósin á hann, kannski skoða pústið og fl.

Myndir koma á morgunn.

Re: E420 - - AMG update, kominn til baka

Innsent: 11 Júl 2010, 14:18
frá SGM
mér þætti gaman að fá að heyra töluna um akstur á bílnum í þinni eigu..hehe

Re: E420 - - AMG update, kominn til baka

Innsent: 11 Júl 2010, 16:01
frá Hlynzi
SGM skrifaði:mér þætti gaman að fá að heyra töluna um akstur á bílnum í þinni eigu..hehe
Það munu vera 53 þús. km
5 ár í næsta mánuði í minni eigu.

Re: E420 - - AMG update, (NÝTT: Myndir + framljós)

Innsent: 11 Júl 2010, 16:07
frá Hlynzi
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/DSC00807.JPG[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/DSC00809.JPG[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/DSC00804.JPG[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/DSC00806.JPG[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/AMG/DSC00801.JPG[/img]

Jæja, ný framljós kominn í bílinn!

Framstuðarinn lenti í smá óhappi, ætluðum að "draga" bílinn þar sem það átti eftir að ná í númerin á hann og kaðallinn kipptist til og braut stuðarann í tvennt þar sem kastarinn fer í hann og kemur úr viðgerð í þessari viku.

Pústið fór líka í smá viðgerð þar sem gleymdist að smíða upphengju aftast á rörið svo álagið varð of mikið á miðjuna.

Re: E420 - - AMG update, (bensíndælu relay vesen)

Innsent: 14 Júl 2010, 20:34
frá Hlynzi
Bíllinn virkaði ágætlega uppá kvartmílubraut, fyrir utan það að missa afl í 2-3 rönnum.

Svo daginn eftir ætla ég að keyra heim eftir ágætis skemmtun í miðbæ reykjavíkur og bíllinn vildi ekki í gang, bensíndælurnar hreyfðust ekki.

Fórum svo að mæla út allt í bílnum áðan og fundum út að relayið virðist virka en var ekki að smella sér alltaf inn, ásamt því að smá flökkt á ljósum í mælaborði gætu verið ábending á að svissinn sé að hrekkja ??


Allavegana var málinu reddað tímabundið með því að dragbinda rofann niður inní segulliðanum og taka svo relayið úr sambandi þegar maður hættir að aka, sem er aðeins of keppnis fyrir menn smekk.

Re: E420 - - AMG update, (bensíndælu relay vesen)

Innsent: 15 Júl 2010, 00:32
frá Sarot
Ég býð upp á flösku af Dom Perignon, daginn sem að þessi bíll keyrir smurðulaust! hehe :P

Lúkkið er alla vega komið en mig langar að sjá þennan ganga eins og hann gerði nú. Á tímum "landsa" ;D