Síða 28 af 41
Re: E420 - - AMG update (Viðgerð á tjóni samþykkt!!)
Innsent: 02 Jún 2009, 18:14
frá Benzari
Glæsibær.
Passaðu að brjóta ekki bakið þótt þú vinnir baki brotnu í undirvinnunni.
Re: E420 - - AMG update (Viðgerð á tjóni samþykkt!!)
Innsent: 02 Jún 2009, 18:33
frá Hlynzi
Þórður A. skrifaði:Hlynzi skrifaði:Jæja, búið að gefa grænt ljós á að viðgerð hefjist og panta varahluti í bílinn.
Margt sem verður gert og reyni að mynda það svona eins og hægt er.
Á að heilsprauta svart?
Já.
Re: E420 - - AMG update (Viðgerð á tjóni samþykkt!!)
Innsent: 02 Jún 2009, 21:02
frá Björgvin
gaman að heyra að þessi er loksins að skríða útúr bílskúrnum búinn að vera þar í alltof langan tíma eitthvað......
Kveðja
Re: E420 - - AMG update (Viðgerð á tjóni samþykkt!!)
Innsent: 03 Jún 2009, 21:19
frá Olbogi
ættlaru að taka vélina úr og láta sprauta vélasalinn þegar bílinn verður sprautaður?
Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 04 Jún 2009, 22:08
frá Hlynzi
Jæja, eftir að Þröstur kíkti til mín og fór að skoða þetta með mér er margt búið að koma í ljós.
Fyrsta lagi gleymdi ég mér (í fyrsta sinn held ég) í herslu á soggreininni, svo helmingurinn var vel þéttur en hinn ekki (hún hélt samt vatni)
Svo er næsta skref að skipta út kertunum, slípa upp jarðtengingarnar til öryggis og senda hann svo í tölvuaflestur (aðallega til að hreinsa út villurnar) svo hann sé ekki að keyra á einhverju vara mappi.
En bestu þakkir til Þrastar, hann er alveg búinn að bjarga deginum, EF ekki sumrinu.
Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 05 Jún 2009, 00:20
frá Þröstur
Sumargleðin

Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 05 Jún 2009, 09:57
frá sveinn
Nú þarf að fara koma þessum bíl á götuna!

Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 12 Jún 2009, 20:59
frá AM
Hver er staðan á þessum
Kv.
Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 12 Jún 2009, 22:52
frá Hlynzi
AM skrifaði:Hver er staðan á þessum
Kv.
Ég renni betur í þetta um helgina ef ég get, þarf að henda honum í tölvuna í öskju og fá smá aflestur og eyðingu á villukóða.
Var að setja ný kerti í hann um daginn og ná í númerin.
Varahlutirnir eru ennþá á leiðinni!!
Re: E420 - - AMG update (Mótorinn allur að koma til)
Innsent: 30 Jún 2009, 23:47
frá Hlynzi
Jæja, nú á morgunn á að fara að skella nýju bretti á kaggann.
Allt að ske.