en allavegana þá er ég buinn að eignast 17benzann.
230TE s124 árgerð 1987 svo að bíllinn er jafn ungur og ég
þetta er fínn bíll, en hefur í augnablikinu rosalega marga galla sem var svosem við buist.
það sem ég er buinn að gera fyrir hann nuna þessa viku sem ég hef átt hann er eftirfarandi:
skipta um miðstöðvarmótor
skipta um allar perur í mælaborði og laga ljósarofan svo það sjáist ljós í mælaborðinu
áðan lagði ég parkljósin yfir í stefnuljósin að framan.
svo næst á dagskrá er að leggja nyjar oliulagnir fyrir sls demparana að aftan og setja þá svo aftur í bílinn.
það sem þarf líka að gerast nuna í vetur er að mála öll föls í bílnum. setja facelift hudd og frammljós og facelift afturljós og nytt stýri og holf á milli sætana. þá fer hann að verða heimilislegur loksins
mig langar að fá mér air ride undir hann. en því við erum að tala um mig þá gerist það líklega alldrey hahahaha
en ég ætla að byrja á því sem mér finnst að þurfi að gera svo mér liki vel við bílinn..
ég keypti þennan gæðing vegna tveggja megin ástæðna. hann er station og hann er skráður fornbíll. sem er EPIC
anyways þið þekkið bílinn vel. það er þetta djásn hér.