W124 E420 1994

#1
Heil og sæl, eftir að hafa selt gamla W124 AMG bílinn minn út sem einhverjir kannast við langaði mér allavega að fá mér eitthvað nálægt honum í miskabætur. Endaði á því að ég keypti mér þennan í síðustu viku hálf blindandi um ástand. Bíllinn er af gerðinni E420 og var fluttur inn fyrir fáeinum árum frá USA og er með þessum fína V8 mótor. Einnig er hann alveg hlaðinn þessu helstu aukabúnaði sem hægt var að fá. Hann er því miður með þetta týpiska ónýta rafkerfi. Bíllinn virkar en vélarafkerfið er orðið dapurt í útliti. Bíllinn gekk fyrst ekki hægagang en það var hreinsað upp á kveikjuloki og hamri og gekk hann fínt þá og átti síðan að endurnýja þetta í næsta mánuði. Það þurfti að flýta því ferli aðeins eftir að bíllinn byrjaði aftur að hökta á föstudaginn og annað kveikjulokið bókstaflega sprungið. Er að bíða eftir nýju hlutunum núna og svo þarf bara að versla rafkerfið og út að keyra. Bíllinn hinsvegar rann í gegnum skoðun og allt í bílnum virkar, alveg original bíll. Bíllinn er óryðgaður að flestu leyti en eitthverjar litlar bubblur að sýna sig og planið er að mála hann og flestir geta andað léttar þegar ég segi að hann verður ekki í sama lit.
Allt í allt, mjög ánægður sérstaklega eftir því að hafa endað á svona góðu eintaki :)
Ég á samt bara eina mynd af bílnum. Er ekki líka viðeigandi að spila þetta víst maður er kominn aftur á benz :beerchug: https://www.youtube.com/watch?v=JspsN0Bbl_Y" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W124 E420 1994

#2
Og mér þætti líka vænt um ef einhver á eða getur bent mér hvar ég nálgast eitt stykki rykhlíf á bakvið kveikju í M119 þar sem hin skemmdist í leiðinni. Þetta var ekki í boði á síðunni þar sem ég tók pöntunina mína. :tumbsdown2:

Re: W124 E420 1994

#3
Til lukku með bílinn :tumbsup2:
og jú, það er erfitt að skilja endanlega við 124 Benz, maður leitar alltaf aftur og aftur í "sama farið" :lol:

Verður gaman að sjá hvaða litasamsetningu þú velur 8)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: W124 E420 1994

#5
Jæja, fann þetta bara nýtt þessi lok sem koma fyrir aftan kveikjuna og pantaði þau. 12 þúsund kall stykkið takk :cry:
en betra víst að hafa þetta í lagi, eiga til að neista í jörð og valda gangtruflunum ef þetta er í ólagi

Re: W124 E420 1994

#6
maxel skrifaði:Jæja, fann þetta bara nýtt þessi lok sem koma fyrir aftan kveikjuna og pantaði þau. 12 þúsund kall stykkið takk :cry:
en betra víst að hafa þetta í lagi, eiga til að neista í jörð og valda gangtruflunum ef þetta er í ólagi
Vel gert! Hættu svo að væla undan kostnaði... þú ert á V8 W124 8)
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

Re: W124 E420 1994

#7
Reynir Ari skrifaði:

ætli þessi peningur hefði hvort sem er ekki bara farið í bensín ef hann væri ekki í hvíldarstöðu :Driverauto:

Re: W124 E420 1994

#8
maxel skrifaði:

Rétt er það :Driverauto:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

Re: W124 E420 1994

#10
V8 er alveg málið :D

Kveikjulok, hamar og vatnslás komu í gær. Get samt ekki sett kveikjuna á fyrr en ég fæ lokin á bakvið. :( Það kemur vonandi í næstu viku. En ég föndra bara lásinn í þá í staðinn á morgun. Einnig vantar mér átakmæli sem mælir 10nm ef einhver þorir að lána eina kvöldstund. Ég þarf að herða niður einn knastásbakka eftir að hafa skipt út "olíutúbu" eða hvað sem maður kallar þetta. Ef einhver á olíutúbur úr málmi fyrir M119 (ég held að þær komu í öllum 5L og eldri 4.2) má sá láta mig vita, ég væri alveg til í að þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessu aftur. Ein spurning líka, hefur einhver reynslu að setja hraðaskífu úr evrópskum bíl í US týpu með mílumæli? Mér finnst þetta míludót með gula hringnum svo yfirdrifið ljótt