Re: E220 árgerð 1993 betrumbætur page2

#12
jæja. ég er buinn að dúlla mér aðeins í þessum seinustu daga.
föndra í hann innréttingu sem er samansett af orginal innréttinguni og innréttingu sem var allveg samlituð.
nennti ekki að skipta um gjörsamlega allt inn í bílnum. svo ég gerði þetta einhvernvegin svona....

svona var hún svo turfti ég að fara í skurðaðgerð :S svo sameina hurðarspjöldin í eitt :)smá munur á gamla og þessum sameinuðu og svo þurfti ég að sækja straum og jörð fyrir frammsætin í miðjustokkinn.
klippti svo rafkerfið fyrir sætin í tvent og færði rofaborðið fyrir sætin úr hurðunum af dónerbílnum. og setti það saman aftur á sætunum. þannig að sætin virka perfect úr rofaborðinu sem nu er staðsett á sætunum.

sætin fóru í, og hurðaspjöldin líka. og loka úrkoman er þessu :)
júník innrétting svo gripurinn kominn á vetrarskóna er bara ánægður með hvað bíllinn hefur skánað frá því að ég fékk hann :)

svona var hann víst :) pinku munur :)

vonandi sjáiði myndirnar.
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: E220 árgerð 1993 risa update page2

#14
takk Reynir :)
í þessum töluðu orðum er verið að mála vinstra frammbretti á bílinn. það sem er á honum er ónytt :) vantar lika hægra frammbretti. svo verða bæði afturbrettin og afturbitinn málað um mánaðarmót :)

hurðarnar einhvertíman seinna..

þarf að laga smá ryð í hurðafölsum og gólfið í skottinu
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: E220 árgerð 1993 risa update page2

#15
E-cdi skrifaði:takk Reynir :)
í þessum töluðu orðum er verið að mála vinstra frammbretti á bílinn. það sem er á honum er ónytt :) vantar lika hægra frammbretti. svo verða bæði afturbrettin og afturbitinn málað um mánaðarmót :)

hurðarnar einhvertíman seinna..

þarf að laga smá ryð í hurðafölsum og gólfið í skottinu
Já góðir hlutir gerast hægt :) þekki það sjálfur með mína Benza hehe :lol:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

Re: E220 árgerð 1993 risa update page2

#17
JÆJA.. maður er heppinn að vera ekki steindauður núna :S setti benzann á lyftu áðan til að laga pústið og skipta um endakút, ákvað að skoða hvaða smellir þetta væru í hjólabunaðinum að framan í leiðini. neinei. þá er hjólnafið hægrameginn brotið frá.. nafið í lagi. bara allt draslið rifið frá boddy-inu.
scary stuff. meistari Guðni vinnufélagi sauð þetta saman af bestu getu. þarf að skera þetta úr öðrum bíl og sjóða í minn..
þar fór pústviðgerðin fyrir lítið :lol:
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: E220 árgerð 1993 risa update page2

#18
hvað er spjallið dautt? :D

jæja var að prufa að breyta aðeins til :)
glær stefnuljós sveimér þá hvað þetta venst hratt :)
á líka par af ameríkutýpu afturljósum. eru svolítið ljósari.
þessi sem eru á bílnum eru svolítið fjólublá.
ég á sett með gráleitum stefnuljósum en annað er brotið. svo þessi fóru á hann..
svo ein svona næturleg ég á því miður ekki mynd af brotinu og viðgerðini á hægri naffestingunum, en bíllinn keyrir. og engir brestir, engir kippir, bara ljúfleiki :)
W124 rules 8)
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur