Keyptur W210 station

#1
Í síðasta mánuði var skroppið til Zamora á norð-vestur Spáni. Þar var keyptur E300 turbodiesel Elegance árg. 1999. Skrítið hvað er lítið framboð af stationbenzum, enda gekk ekki vel að finna slíka hér á svæðinu. Vegalengdin héðan norðureftir er um 700 km - þ.e. þetta var samtals um 1.400 km bíltúr. Eyðslan kom á óvart. Hraðastillirinn var stilltur á 90 km/klst. og útkoman var 6,15 ltr./100 km. Þessi á eftir að vera drjúgur í flugvallarakstrinum. Myndin er einmitt tekin í Zamora um kvöldið. Þar var gist eina nótt og brennt svo heim upp úr hádegi daginn eftir.
C180 bíllinn, "Dimmblár" var seldur rétt fyrir síðustu áramót.


Kveðja,
Sveinn Arnar.
Mercedes-Benz 280SE 1984
Mercedes-Benz 250D turbo 1992
Mercedes-Benz E300 turbo diesel 1999
Mercedes-Benz C180 Elegance 2001 Seldur
Viðhengi
2014-04-22 22.27.52.jpg