Síða 2 af 2

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 16 Maí 2014, 20:08
frá bhp
Síðan í dag

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 16 Maí 2014, 21:30
frá Benzari
Töff.

Til hamingju með skoðunarsektina. :twisted: :|

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 16 Maí 2014, 22:01
frá Ljónshjarta
Benzari skrifaði:Töff.

Til hamingju með skoðunarsektina. :twisted: :|
Haha takk fyrir, ætla að reyna að afsaka mig með því að það var klesst á hann 31 janúar og ég var í 3 vikna basli við bölvað tryggingarfélagið. Þeir vildu meina að ég væri í órétti en ég sagði þeim frá fyrsta degi að ég væri viss umm að ég væri í 100% rétti þar sem ég var búinn að kanna árekstrarsvæðið að fullu.
Þeir þvertóku fyrir það að ég væri í rétti, þannig að ég krafðist þess að málið yrði tekið í tjónanefnd sem það var svo gert og ég dæmdur í 100% rétti 3 og hálfri viku eftir að áreksturinn átti sér stað og þá var liðið langt á febrúar, þegar ég á semsagt að fara í skoðun. Þá þurfti að gera við bílinn á verkstæði sem mér leist ekkert á og vinnubrögð þess verkstæðis staðfestu hugmyndir mínar um það. Fyrir verkstæðið að panta hurðina tók næstum viku og þá var sprautað hurðina í grænum lit sem er fjarskyldur ættingi blauschwarz metallic. Ég krafðist þess að hurðin yrði sprautuð aftur í lit sem væri nú eitthvað líkur blauschwarz og það tók 3 daga í viðbót. Þá er bara kominn mars og maður á fullu í skóla og vinnu eftir skóla og hefur engann tíma til að koma sér í bæinn í skoðun því að fara í skoðun hérna á Akranesi er bara fáránlegt, þeir sem þekkja til akranes og skoðunarstöðvarinnar þar vita þetta alveg.

En svo ætla ég bara að kenna prófatörninni um að hafa ekki komist í þetta :tumbsup:

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 16 Maí 2014, 22:13
frá Benzari
Já hann er sko landsþekktur sá gamli á Frumherja á Skaganum. :D

Gott að þú fékkst tjónið bætt.

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 16 Maí 2014, 22:24
frá Ljónshjarta
Benzari skrifaði:Já hann er sko landsþekktur sá gamli á Frumherja á Skaganum. :D

Gott að þú fékkst tjónið bætt.
Takk takk 8) :D

Re: Mercedes Benz 220E

Innsent: 18 Jún 2014, 02:08
frá Eðalstjarna
Þessi er hörkuflottur :tumbsup2: