Síða 3 af 3
Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 01:32
frá Benni
Bættist við "bróðir" í safnið. Er hugsaður sem varahlutabíll.
Er sama árgerð og samskonar týpa, 230E.
Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 09:14
frá gmg
Varahlutabíllinn virðist líta vel út ( of góður til að rífa ? )
Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 09:51
frá Benni
gmg skrifaði:Varahlutabíllinn virðist líta vel út ( of góður til að rífa ? )
Kvöldmyndir blekkja

en hann er gangfær

Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 10:11
frá Benni
Aðeins betri myndir af varahlutagripnum
Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 11:39
frá JBV
Það er gott að eiga færanlegan varahlutalager á hjólum.

Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 05 Ágú 2014, 14:55
frá Benni
JBV skrifaði:Það er gott að eiga færanlegan varahlutalager á hjólum.

Nákvæmlega

Reyndar bremsar hann ekki lengur svo að hann fer ekki langt án aðstoðar

Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 31 Des 2014, 10:10
frá Benni
Kominn með 2015 skoðun athugasemdalaust alveg eins og síðast
Eiginlega magnað því að það sem manni finnst vera að er "bara smáatriði sem skiptir augljóslega ekki máli í stóra samhenginu"

Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 31 Des 2014, 15:56
frá Benzari
Þetta á aldrei að vera spurning með svona heilleg eintök.
Til hamingju með að vagninn sé enn á planinu, stóð þetta nokkuð tæpt eftir auglýsingu og hártoganir?

Re: W124 230E 1992 - NM-050
Innsent: 01 Jan 2015, 12:55
frá Benni
Benzari skrifaði:Þetta á aldrei að vera spurning með svona heilleg eintök.
Til hamingju með að vagninn sé enn á planinu, stóð þetta nokkuð tæpt eftir auglýsingu og hártoganir?

Málið er bara að ég ku vera of hreinskilinn í auglýsingum. Segi það sem mér finnst eða tel vera að enda vil ég að væntanlegur kaupandi viti hverju hann megi eiga von á. Það endar oftast í því að menn bjóða bara e-ð grín sem ég tel vera undir raunverði bílsins. Samt virðast aðrir geta selt sína bíla á hærra verði þó svo að þeir séu í mun verra ásigkomulagi
Svo eru þeir sem endalaust reyna að fá mig til að skipta á torfærumótorhjólum, sem ég hef bara engan áhuga á, og skilja ekkert í mér að taka ekki slíkum kostaboðum. Hvern fjandann ætti ég að gera við Enduro hjól, ekki kann ég að selja slíkt
