Síða 2 af 2

Re: Mercedes Benz E500 Avantgarde nýjar myndir neðst í 1.pós

Innsent: 31 Júl 2014, 17:09
frá birgirs
Mjög flottur, finnst hann reyndar fallegri á ómáluðum felgum (einn af þeim).

Er lítið um W211 hérna á spjallinu?

Re: Mercedes Benz E500 Avantgarde nýjar myndir neðst í 1.pós

Innsent: 01 Ágú 2014, 13:20
frá valdi
takk fyrir. já það virðist vera mjög lítið um w211 bíla hér á spjallinu, það eru eiginlega mest eldri bílar hérna og w124 alltaf í fararbroddi :)

Re: Mercedes Benz E500 Avantgarde nýjar myndir neðst í 1.pós

Innsent: 01 Ágú 2014, 15:08
frá Benni
valdi skrifaði:takk fyrir. já það virðist vera mjög lítið um w211 bíla hér á spjallinu, það eru eiginlega mest eldri bílar hérna og w124 alltaf í fararbroddi :)
Það hefur hallað ansi mikið á alla spjallþræði eftir tilkomu Facebook. Það er því miður staðreynd :?
Varðandi það að það sé mest eldri bílar hérna þá er það alveg rétt. 124 línan hefur augljóslega verið vinsælust enda mikið til af þeim bílum enn á götum borgarinnar, alveg magnað m.v. bíltegund sem kom á markaðinn 1985 :tumbsup2:
210 línan hefur ekki notið eins mikillar hylli meðal spjallverja en 211 hefur verið í sókn. Kæmi mér ekki á óvart að það yrði aukning þar á - ef menn nenna ennþá að spjalla í svona spjallkerfum :wink:

Til að fá meira líf í svona spjallþræði þá þurfa bara allir að vera duglegri að setja inn efni. Þú varst nú ansi duglegur Valdi fyrir nokkru síðan, bara endilega halda því áfram.
Spjallið er mum meira skoðað en menn halda, a.m.k. sýnir tölfræðin um flettingar það :D

Re: Mercedes Benz E500 Avantgarde nýjar myndir neðst í 1.pós

Innsent: 04 Ágú 2014, 13:20
frá valdi
já takk fyrir benni, var mun öflugri á spjallinu áður hehe :)

já w124 eru besti bíll sem hefur verið búinn til það er bara þannig!