Ég kaupi bílinn í mars á þessu ári og þá var hann með
endurskoðun.
Það var sett útá eiginlega allar perur,bensínleka og spyrnur að aftan.
Ég byrjaði á því að kaupa allar þær perur sem vöntuðu og fór svo niður í öskju og keypti spyrnusett að aftan. Síðan fór ég í að skoða þennan bensínleka sem var allveg mesta basl að laga því það lak úr kopar rörinu sem er á milli bensíndælu og bensínsíu það endaði með því að ég fékk skinnur fyrir glussaslöngur til að stoppa lekan.
Því næst fór ég á bílnum um Vestfirðina vegirnir þar fór ekki vel í gamla jálkinn því þegar ég kom aftur í bæinn kom í ljós að það voru 3 brotnir gormar þannig að ég hafði samband við mekanomen og lét þá panta fyrir mig sportline gorma sem lækkuðu bílinn 40mm að framan og 20mm að aftan og 8mm gúmmí púða. Þá fór ég með bílinn til meistaranna í bíladoktornum og lét þá skella gormunum í og yfirfara bílinn og þá kom í ljós að það er farinn lega í drifinu og það væri kominn tími á klossa að aftan.
Að lokum farið með bílinn í hjólastillingu en þá kom í ljós að það var einn stýrisendi skakkur þannig að ég fjárfesti í 2 nýjum og þá var loksins hægt að hjólastilla bílinn. En síðan þá er þessi eðal kerra búinn að reynast mér mjög vel. ég tók þá ákvörðun að leifa drifinu bara að vera í friði á meðan ég er að klára skólann.
en hér eru nokkrar myndir af bílnum. ég á því miður engar af viðgerðar ferlinu
Hérna er hann á Vestfjörðunum
Eftir að ég var búinn að skipta um spyrnur og gorma
Felgupælingar
nýbónaður
síðan skipti um kerti, loftsíu, olíu, klossa að aftan og setti hann á vetrar dekk um helgina 02.11.2013
En framtíðar pölnin eru að reina að fá nýja inréttingu og kanski heilmála ef ég fæ vinnu á verkstæði í sumar.