Ég keypti nýlega forláta w124 bíl E300 4Matic árgerð 1987. Mig vantaði auka bíl fyrir heimilið, getur ekki verið mikið betra en þýskur höfðingi á fornbílatryggingu og án bifreiðagjalda. Svo hefur mig langað í w124 bíl síðan ég var polli, það er bara eitthvað við þessa bíla.
Þetta er annar Benzinn sem ég á, átti w210 E230 1998 árgerð sem var ágætur, þangað til að mótorheilinn í honum brann yfir, en það er önnur saga.
Þessi bíll er ekinn rúmlega 300 þúsund kílómetra (rétt tilkeyrður)
Mjög vel búinn eins og t.d leður, lúga, rafmagn í öllu, loft í sætum, einhver búnaður til að hita bílinn á veturna (sem ég kann ekkert á og veit ekki hvort virki), air condition o.s.frv
Bílinn er fluttur inn árið 2000, þá 13 ára gamall, og hóf ferill sinn á Húsavík, fór svo suður í 2 ár minnir mig og hefur svo verið hérna fyrir norðan síðan.
Kostir*
Bílinn er nánast ryðlaus, það eru örlitlar yfirborðsryðbólur (neðst á bílstjórahurð, í kringum loftnet og á horni að aftan fyrir neðan ljósið bílstjóramegin) sem verður stoppað einhverja helgina á næstunni. Undirvagn er alveg stráheill, og hvergi ryð sem er nálægt því að fara í gegn.
Bíllinn var mikið yfirfarinn árið 2010 og 2011, og eru til nótur fyrir vinnu og varahlutum fyrir rúmlega 500 þúsund, skipt um alla þessa helstu slit hluti, og svo einhverjar stærri aðgerðir eins og t.d tímakeðja og strekkjara, undirlyftur o.m.fl.
Bílinn hefur alltaf verið í eigu fólks á "besta aldri", þannig að þetta er engin útjöskuð spyrnu kerra.
Gallar*
Glæra byrjuð að flagna á frambrettinu bílstjóra megin (verður sprautað fljótlega)
Brot í framstuðara neðst niðri farþegamegin (vantar stuðara)
Klassísk rifa á leðri bílstjóramegin (lagað með teipi)
Plön*
Laga frambrettið og stuðarann, kaupa Monoblock felgur, og svo er það bara að keyra
Hérna eru svo myndir af gripnum eins og hann er í dag.