Fyrir valinu varð eitt best eintak landsins svokallaður „Vestmannaeyjabíll" en það er S4 týpa árg. 1991 (fyrst skráður í Þýskalandi 27.11.1990). Bifreiðin er sjálfskipt með 5 lítra V8 vél, vigtar 1600 kg. og er skráð 316 hestöfl. Bifreiðin var flutt hingað til lands þann 22.9.1999 og hafði henni þá verið ekið 126.176 km. Bifreiðin hafði fengið mjög viðhald í Þýskalandi og eingöngu verið þjónustuð af viðurkenndu Porsche umboði. Innflytjandi bifreiðarinnar átti hana til ársins 2002 en þá fól hann Bílabúð Benna að annast sölumeðferð á henni. Í október það ár kom kona upp á fasta landið í þeim tilgangi að finna fertugsafmælisgjöf handa manni sínum. Mörgum árum áður hafði hún gefið manninum það loforð, er hann varð að selja muscle-car bifreið sína vegna barneigna, að þegar hann yrði fertugur þá myndi hún gefa honum sportbíl. Hún stóð við stóru orðin, keypti bifreiðina, lét setja á hana slaufu, flutti til Vestmannaeyja og færði kalli sínum á kæjanum í eyjum. Næstu 11 árin fékk bifreiðin gott viðhald hjá þeim hjónum og notuðu þau hana sem sumarbíl bæði í eyjum sem og upp á landi. Frá árinu 2010 hefur bifreiðin hins vegar lítið verið notuð og aðallega kúrt undir ábreiðu.
Síðastliðinn laugardagsmorgun fór ég, Bjartur (Guðbjartur) og Ingólfur (Bannsettur) til Vestmannaeyja í þeim tilgangi að skoða bifreiðina. Þar sem bifreiðin var óskoðuð og númer innlögð þá tókum við til öryggis með okkur bílakerru sem við skildum eftir við Landeyjarhöfn. Í Vestmannaeyjum skoðuðum við bifreiðina ítarlega og eftir að Bjartur hafði gefið henni heilbrigðisvottorð þá reynsluókum við henni við Stórhöfða. Í framhaldinu hófust viðræður við hjónin um ættleiðingu og tveimur kaffibollum síðar var ég kominn með afsal og lykla í hönd. Bifreiðinni fylgdu ýmsir hlutir eins og t.d. upprunalegu D90 felgurnar á vetrardekkjum, tölvukubbar, bremsuklossar, opið púst, Porsche málverk o.fl. Þar sem samningaviðræður höfðu staðið yfir lengi og Herjólfur í þann mund að fara þá var lítið annað að gera en að fylla ferðabílinn okkar af varahlutunum og koma 928 um borð í Herjólf.