Síða 1 af 3

C180 Esprit. '94 bsk.

Innsent: 01 Júl 2013, 20:36
frá Benzari
Fyrsti Benzinn minn kominn aftur í mína eigu.
Flutti hann inn fyrir rúmum 13 árum í gegnum SmáraHamburg, seldi svo fyrir tæpum 10 árum.

'94 C180 Esprit
Beinskiptur
Aukabúnaður:(sem ég man)
Topplúga
Rafmagn í speglum
Litað gler

Ekinn í dag 225 þúsund og þarfnast mikilla viðgerða og skuldauppgjörs.


Leit svona út, er fjarska fjarska fjarskafallegur í dag.
Meira seinna.

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 01 Júl 2013, 21:06
frá gmg
Til lukku með hann aftur, bíð spenntur eftir nýrri mynd af bílnum !

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 02 Júl 2013, 09:08
frá Benni
"phoned home"
Var hann kominn með heimþrá? :lol:

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 02 Júl 2013, 10:06
frá JBV
Til hamingju, þessi var nú flottur hjá þér á sínum tíma. Hvernig hefur bíllinn staðist tímans tönn gagnvart ryðmaurnum :?:

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 02 Júl 2013, 14:52
frá Benzari
Já gamli hvíti hringdi um miðja nótt á hraðri leið í pressuna.

Það eru kannski tveir þrír boddýhlutir sem má bjarga, kemur í ljós þegar/ef að farið verður að slípa niður.
Annars er líklegasta lendingin að bletta hann og nota yfir veturinn eins og hann endist, annað mál ef þetta væri C240 eða stærra.

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 03 Júl 2013, 13:05
frá Benzari
8 athugasemdir í skoðun.
Klára að græja helminginn í dag og læt fagmenn um rest.
Bæði frambrettin eru slæm.
Framhurðarnar einnig ljótar í kringum lista, afturhurðarnar betri.
Húdd og skottlok barasta fínt.

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 03 Júl 2013, 23:01
frá eyjo300
verður vonandi eins og hann var...
sá þennan oft i hfj þegar ég bjó þar.
strákurinn var að taka vel á honum í hvert skipti sem maður sá hann.

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 04 Júl 2013, 23:13
frá gmg
Það verður gaman að fylgjast með þessu verkefni, á að skvera og selja eða skvera og eiga ?

Re: C180 Esprit phoned home

Innsent: 04 Júl 2013, 23:20
frá Benzari
Það hefur enginn áhuga á þessi eintaki nema ég, verður keyrður á veturna eins og staðan er núna.

Eftir 4 umferðir af hvítu lakki var ljóst að það var endalaust hægt að spreyja án þess að fela upphleypt stálið þar sem ryðbólurnar eru.
Þess vegna var bara blettað með pensli og glærað yfir.

Já ég veit að margir hrista hausinn, þetta er bara gert til að nota í nokkra vetur í viðbót og sjá til hver staðan verður ef hann endist í fornbílaaldurinn. :Driverauto:

Re: C180 Esprit. '94 bsk.

Innsent: 14 Júl 2013, 21:08
frá Alpina
Ryð hefur átt góða samleið með w202,,, þekktir fylgifiskar