en ég fékk hana upp í annan bíl nýlega.
þetta er reyndar í annað skiptið sem ég eignast þessa bifreið, en ég seldi hana árið 2008
Alpina B3 3.3 Touring. árg 2001
númer 46 af 146 framleiddum. og að ég myndi halda einhver fágætasti bmw sem hingað hefur ratað.
margir hérna þekkja eflaust Alpina, en þeir eru eitt elsta og virtasta bmw breytingafyrirtæki sem til er. og síðustu 35 árin eða svo þá hafa þeir verið flokkaðir sem sjálfstæður bílaframleiðandi.
alpina byrja með tóma boddýskel og raða saman bíl sem er samblanda af þeirra eigin hlutum og bmw hlutum, og teljast alpina sem framleiðandi bílsins, hann er hvorki með bmw framleiðslunúmer né skráður sem bmw yfir höfuð.
B3 3.3l er byggður í grunnin á bmw 328/330. en er með alpina mótor, skiptingu, fjöðrun.bremsum og flr
mótorinn er 3.3l línu sexa, 280hö
skiptingin er 5 gíra, skipt með tökkum í stýrinu
sá sem pantaði þetta eintak nýtt á sínum tíma hefur svo alveg brillerað á pöntunarskjalinu, en bíllinn er individual (sambærilegt designo hjá MB)
hann hefur svo að ég held hakað við hvert box sem var í boði. en bíllinn er alveg fáránlega vel búinn,
ma:
nappa leður
sportstólar
exclusive viðarpakki
sjónvarp/navi/obc
sjálfvirk tvívirk miðst.
loftkæling
hiti í sætum
harman kardon hljóðkerfi
magasin
innbygður gsm sími, get lesið sms í mælaborðinu og flr
armpúði
xenon
fjarlægðaskynjarar
toppbogar
rafmagn í öllu og minnispakki (stillir sæti.útvarp/tv og miðstöð og flr þegar þú opnar með fjarstýringu)
litað gler
glertopplúga
regnskynjari
sport aðgerðastýri
cruise control
individual codes, svart toppáklæði. glans svartir listar
og eflaust flr..
þetta er án nokkurns vafa ein skemmtilegasta bifreið sem ég hef átt. verandi "station" bmw er þetta frábær bíll til venjulegrar notkunar, en svo er hægt að svínkeyra þetta eins og fátt annað. mótorinn í þessu orgar alveg,
þessi bíll var fluttur inn tæplega 4 ára gamall, en hefur verið gríðar heppinn með eigendur, verið þjónustaður af umboði eins og bíll í ábyrgð og er með samviskulega útfylltar þjónustubækur frá umboði frá upphafi. fór síðast í inspectionII núna í sept.
mbk
ívar