Skipti við Tedda á þessum gæðagrip.
W124 230E
1992 árgerðin.
Sjálfskiptur.
Keyrður um 304 þúsund.
Kann vel að meta þennan bíl, enda W124 klassa bílar.
Annars er svona eitt og eitt sem má ditta að.
Væri gaman að taka smá ryð í gegn, sem er nú alls ekki mikið miðað við svona gamlan bíl.
Skipta um gorma að framan og einhvað að kíkja á framstellið.
Aðeins skakkur til hægri, ekkert alvarlega samt.
Svo kíkja á bensíngjöfina. Hún er heldur til næm - Búið að græja hana.
Græja nýjan spilara í tækið, þessi er sennilega búinn að gefa upp öndina - Kominn í.
Festan annað framljósið og fara yfir tengingar á því - Búið að því!
Síðan væri gaman ef einhver ætti svona Avantgarde grill sem ég gæti keypt, var þannig á 280 bílnum sem ég átti, alltaf fundist það fallegt framan á svona gripum.
Ein mynd af gripnum nýþrifnum