Kominn tími á nýjan þráð með nýjum myndum. Það er líka komið að ákveðnum tímamótum hjá VV019. Hann var fyrst skráður 17.12.1992 í Þýzkalandi og er því að verða 20 ára.
Eignaðist hann í janúar 2009 með dyggri hjálp Sveins hérna á spjallinu. Verandi úti á landi þá er ómetanlegt að hafa mann á staðnum til að klára dæmið hratt og örugglega.
Fluttur inn árið 1998 og ég er fjórði eigandinn (einn í Þýzkalandi). Hef verið heppinn með fyrri eigendur því þetta er þéttur og góður bíll. Kílómetrastaðan stendur núna í 289.xxx.
Við kaup voru báðir afturgormar og demparar lúnir.
Til að halda bleytunni frá gólfinu finnst ekkert betra. Á sumrin nota ég taumottu bílstjóramegin.
... Álftafjörður framundan eftir keyrslu frá Reykjavík
Platti í stuðara keyptur 2012. Margar góðar myndir frá fyrri árum hálf skemmdar því vöntunin er lýti. Svipað og fyrirsæta sem vantar eina tönn.
Þann 19. janúar n.k. verða kominn 4 ár síðan ég eignaðist bílinn. En í kílómetrum talið hef ég ekki getað haldið í við notkun fyrri eigenda. Styttra að ferðast innanbæjar í kaupstöðum heldur en Reykjavík. Í dag er ég sem sagt með 11,9% af eknum km (af 289.xxx) en hef átt bílinn tæplega 20% af tímanum síðan hann rann út af færibandinu í Stuttgart. Eigandinn á undan mér hefur notið tæplega helmings af eknum kílómetrum bílsins.
(„Ísland 01 74-77“ er fyrsti eigandinn á Íslandi og aldur hans á meðan hann átti bílinn, o.s.frv)
En hvað um það, þetta er einfaldlega besti bíll sem ég hef átt. Ef ég slepp við meiriháttar umferðaróhöpp í framtíðinni þá er ekki að sjá ég fái mér nýjan bíl.