1998 E55 AMG

#1
Búinn að eiga þennan bíl síðan síðasta haust, en hef aldrei átt alminnilega myndir af honum svo það er kominn tími til að henda nokkrum góðum inn.

Þessi er með 5,4 lítra V8 sem skilar einhverjum 350 hestöflum og 530NM af togi, mjög svo skemmtileg vél!
Svart leður í sætum sem lýtur MJÖG vel út ásamt restinni af innréttingunni, frammísætin er að sjálfsögðu rafmögnuð.
Svo skortir ekkert aukabúnaðinn í þetta, hiti í öllum sætum, auto í öllum rúðum, gardína í afturrúðu, park-skynjarar, niðurfellanlegir höfuðpúðar, 6 diska magasín sem er staðsett í skottinu og finnst mér ansi gölluð staðsetning uppá að skipta um diska og að hafa dót í skottinu.
Kem með myndir af innréttingunni þegar ég á þær.


Breytingar/plön.

Ætla láta laga park-skynjarana, þeir væla bara ef kveikt er á þeim, samkvæmt fagmanni þá er leiðslan fyrir skynjarann sem liggur næst pústinu búin að brenna.
Ég er ekki búinn að gera margt við hann síðan ég fékk hann fyrir utan gott viðhald, en er samt búinn að setja bláar díóður í stöðuljósin sem kemur mjög vel út og í inniljósin frammí, á eftir að græja afturí.
Ætla einnig að setja díóður í númeraljósin, hvernig skiptir maður um perur það? Eina leiðin sem ég hef séð er að gera það innanfrá og rífa þá klæðninguna innúr.
Langar líka að setja facelift afturljós, þannig ef einhver lumar á svoleiðis þá má hann hafa samband, helst smókuð.
Ætla að pólýhúða felgurnar, er að spá í gunmetal grey, eða einhverjum svipuðum lit, aðeins dekkri en þær eru núna allavega, endilega komið með álit/hugmyndir ;)
Svo langar mig rosalega mikið í lip á fram- og afturstuðara, hvar get ég fengið svoleiðis?

[img]http://i50.tinypic.com/149zibm.jpg[/img]

[img]http://i48.tinypic.com/x3hdz8.jpg[/img]

[img]http://i48.tinypic.com/x3hdz8.jpg[/img]

[img]http://i45.tinypic.com/2yyvzo0.jpg[/img]
Seinast breytt af Viktor þann 26 Ágú 2012, 21:08, breytt 2 sinnum alls.


1998 Mercedes Benz W210 E55 AMG

Viktor Dagur Andersson

Re: 1998 E55 AMG

#4
Flottur bíll. Þessi er mjög gott eintak og búið að nosta svolítið við hann á síðustu árum.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: 1998 E55 AMG

#5
Þakka ykkur fyrir :) Já Andri, þessi er algjör gullmoli, lýtur út sem nýr bæði innan og utan, og ég ætla að halda því við, er á dagskránni að polyhúða felgurnar í sumar/haust, var farið að sjá svoldið á þeim eins og sést á myndunum.
1998 Mercedes Benz W210 E55 AMG

Viktor Dagur Andersson