Mercedes Benz CL600 20" Carlsson - nýjar myndir

#1
Sælir,

fyrst maður er kominn á benz þá þarf maður að skrá sig á spjallið.

Ég var sem sagt að kaupa þennan um daginn.

2001 árgerð af CL600 V12
Keyrður 50þ km.

Stappaður af aukabúnað t.d:

-Lyklalaust aðgengi, lykillinn af bílnum er eins og debetkort
-Hurðir og skott lokast sjálft
-Hiti/kuldi í sætum
-Minni og rafmagn í sætum
-Nudd í baki og rass b/m frammí
-Hægt að stilla hliðarstuðning í sætunum
-Rafmagnsgardína
-Rafmagn í hauspúðum
-Rafmagn í stýri
-Cruise control sem heldur sömu vegalengd milli bíla og sýnir allt á skjá
-Stýri léttist/þyngist eftir hraða
-Boraðir diskar
-20" Carlsson two-piece felgur

...og endalaust meira

Vangefið gott að keyra þetta og var búinn að gleyma hvað V12 eru ruddalega góðar vélar.

Bráðabyrgðamyndir:

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=2&c ... 6693&w=600[/img]

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=2&c ... 6683&w=600[/img]

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=2&c ... 6684&w=600[/img]

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=2&c ... 6687&w=600[/img]

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=2&c ... 6690&w=600[/img]
Seinast breytt af fogeti þann 02 Jan 2012, 19:23, breytt 1 sinni alls.


Mercedes Benz CL600 V12 Carlsson '01
Yamaha R1 '06
Ktm sxf 450 '08

Re: Mercedes Benz CL600 20" Carlsson

#7
Innilega til lukku með þennan glæsilega bíl :)

Er þetta gamli bílinn hans Gumma á Bílasölu Reykjavíkur? Mögnuð saga um þann bíl.

Var víst einn af þrem bílum sem var notaður í auglýsingamynbönd og myndir í bæklingum fyrir þennan bíl frá framleiðanda, átti aldrei að vera seldur en einhver mistök voru gerð og hann fór í sölu og seldist.. Ef þetta er sami bíll

kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Mercedes Benz CL600 20" Carlsson

#8
Já sagan á bakvið hann er þannig að þetta var eins og þú segir auglýsingarbíll sem átti aldrei að fara á markað. Þessi þrjú eintök voru gefin ákveðnum manni þarna úti sem seldi þennan eina bíl og var búið til serial númer á hann svo það væri hægt að setja hann á númer. Þetta var gert án leyfis frá Mercedes. Ef lesið er úr tölvunum á bílnum þá kemur fram hið raunverulega Serial númer sem segir að þetta er 2001 árgerð, en ekki 2000 árgerð eins og skáldaða serial númerið.
Mercedes Benz CL600 V12 Carlsson '01
Yamaha R1 '06
Ktm sxf 450 '08

Re: Mercedes Benz CL600 20" Carlsson

#9
fogeti skrifaði:Já sagan á bakvið hann er þannig að þetta var eins og þú segir auglýsingarbíll sem átti aldrei að fara á markað. Þessi þrjú eintök voru gefin ákveðnum manni þarna úti sem seldi þennan eina bíl og var búið til serial númer á hann svo það væri hægt að setja hann á númer. Þetta var gert án leyfis frá Mercedes. Ef lesið er úr tölvunum á bílnum þá kemur fram hið raunverulega Serial númer sem segir að þetta er 2001 árgerð, en ekki 2000 árgerð eins og skáldaða serial númerið.

Er ekki hann ekki bara influttur frá Albaníu :roll: :lol: :lol:
Hörður
MB E 230 Avantgarde ´96
MB 280 SE ´72
cron