Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

#51
Fór með þennan í skoðun um daginn. Fékk endurskoðun út á efri spindla að framan :tumbsdown2:

Fór daginn eftir í Bíladoktorinn og því var reddað: Eftir miklar vetrardekkjapælingar keypti ég Nokian Hakkapelitta 8
í 215/55-16 á stálfelgur sem duttu upp í hendurnar á mér (takk Þröstur!).
Búinn að keyra aðeins á þessum dekkjum í snjónum hér í bænum og fyrir
norðan og þetta eru bestu vetrardekk sem ég hef prófað!!! Reyndar
líka þau dýrustu :lol:

Svona lúkkar hann í dag á koppunum sem ég keypti notaða á ebay.de: Er mjög sáttur við hann svona!


Logi Sigurjónsson

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

#54
JBV skrifaði:haha þurfa menn að sækja svona alla leið til íbei :?: :D

Þvílíkt álfelguland sem klakinn er orðinn. :lol:

Annars tekur sá grái sig bara vel út á þessum plastskífum. :tumbsup2:
Já það er ekki auðvelt að finna 16" Mercedes koppa hér heima :lol: Það eru til koppar undir
C-bíl í Öskju, held að það séu þessir: Mér finnst þeir ekki alveg nógu flottir, fyrir utan að þeir kosta yfir
8þús stykkið! Maður ætti ekki annað eftir en að kaupa koppa-sett
fyrir rúml. 32.000 :lol:
Logi Sigurjónsson

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

#55
Var að keyra um á þessum í slabbinu seinnipartinn í dag þegar
hann rúllaði í 280þús km. Hugsaði með mér: Hann er bara helvíti
góður miðað við aldur og fyrri störf... 2 mín seinna fór að
finnast einhver víbringur og heyrast hærra í vélinni :| WTF :x

Stoppaði og kíkti undir bílinn og þá hafði hitahlífin ofan við
pústið undir miðjum bílnum losnað og lá ofan á pústinu. Komst á
lyftu og festi aftur = Allt í orden :tumbsup:
Logi Sigurjónsson
cron