Re: 500 sec 90

#41
Svart/metallic fær mitt atkvæði finnst eigilega flottara að hafa sanseringu í lakki og þá sérstaklega á svona eðalvagni


Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: 500 sec 90

#47
Buzz skrifaði:Það er alltaf einhvað að detta inn :clapping: fékk þetta stýri í dag og svo auka felgu frá fyrrum eiganda :D
[img]http://farm5.static.flickr.com/4084/499 ... 1eaa_b.jpg[/img]
Endalaus hamingja að versla varahluti í Benz :mrgreen:

Djöfull er þetta fallegt stýri maður, það væri gaman að verða sér út um svona í 95 E200 bílinn minn....


Þetta er alveg þvílíkur moli maður usssss. Það væri nú gaman ef maður gæti tekið W124 svona í nefið, en ég ætla að láta mér duga að láta heilmála hann í vetur og ditta aðeins að nánast óaðfinnanlegri innréttingu, kramið í honum er í toppmálum enda bara keyrður 206þús þannig að hann getur alveg rúllað eitthvað álíka í viðbót leikandi...
1995 W124 E200 "Daimlerinn"

Re: 500 sec 90

#48
Fékk þetta stýri hjá Bifreið.is, það er eitt til hjá þeim að ég held, þeir eru mjög sanngjarnir í verði, mæli með þeim, það er endalaus hamingja að versla varahluti í Benz :D
206þús er bara rétt tilkeyrsla, nú er bara að fara að fínkeyra hann í 500þús, þá getur þú farið að keyra hann almennilega, þetta eru eilífðarvélar ef það er hugsað vel um þær. Gott ráð er að skifta um frostlög á tveggja ára fresti, heddinn duga þá endalaust.
Það er bara draumur að eiga Benz og geta klappað þeim, enda segja sumir að þetta séu trúarbrögð "Amen við því"
:hylling:
Mercedes Benz 500 sec 1990.

Re: 500 sec 90

#50
Eiga þeir hjá TB ekki bara svona Carbon Fiber look dæmi?? Er ekki að fíla það en ég get kanski fengið þá til að panta svona handa mér...

Já ég er einmitt nýbúinn að skipta um alla vökva og allt í bremsum á honum, dempara að aftan og spindlana að framan..

Ég hef alltaf verið mikill benz kall hef unnið mjög mikið við að keyra Actros vörubíla og kann rosalega vel við þá.

Ég hef líka átt W203 C200 Kompressor og kunni svosum ágætlega við hann en langaði alltaf svakalega í Facelift W124 og fyrst ég er kominn með svona heilt eintak í hendurnar þá ætla ég að henda smá aur í að gera hann huggulegann, það eru komnar nokkrar "unglingabólur" á hann sem er alveg skiljanlegt á 15 ára gömlum bíl, ætla að láta mála hann í vetur og verða mér útum Monoblock felgur undir hann og gera hann sætann fyrir næsta sumar. Ég leyfi ykkur eflaust að fylgjast með gangi mála hérna.

En takk fyrir infóið í sambandi við stýrið og enn og aftur til lukku með þennann glæsilega SEC.
1995 W124 E200 "Daimlerinn"