Síða 12 af 15

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 22 Nóv 2011, 20:57
frá Björgvin
það reyndar gæti nú alveg tekist satt að segja, Jóhannes í Réttum bíílum fékk bílinn í dag til að setja í hann rúðurnar og topplúguna ásamt því að athuga blessaða kúplinguna, hún hleypir endalaust inná sig loft einhvers staðar, ef allt gengur upp verður hann nú að mestu leyti til í þessari viku þannig að hugsanlega næ ég næstu samkomu þó hann verði ekki alveg tilbúinn eins og t.d loftklæðning sem vantar hahahaha
( auðunn er að klára hana)
kveðja

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 22 Nóv 2011, 22:04
frá gmg
Sá þennan í dag fyrir utan hjá Jóhannesi :tumbsup2:

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 27 Nóv 2011, 21:02
frá Björgvin
Jæja Jóhannes snillingur er að massa þetta allt saman, kúplingin lék í höndum hans og er komin í lag, rúðurnar eru komnar í, lúgan fer að fara í, kom í ljós að þunn stýring sem liggur undir lúgunni þverri er ekki til staðar :( en þessu verður mixað í þar til ég hef tök og efni á að panta þetta stykki. Ekki að ég muni nota lúguna mikið með mína tröllvöxnu hæð :) Vonandi að hann náist á mánudaginn ef ekki þá kem ég pottþétt á jólasamkomuna, ef hún verður :)

Ef einhver á gúmmíin sem eiga að vera milli stuðara og brettis að framan og festingarnar að aftan má sá hinn sami senda á mig línu, mínar voru ónýtar :(

Myndir birtast von bráðar :)

Kveðja

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 27 Nóv 2011, 21:12
frá sveinn
Það verður gaman að sjá þennan þegar hann verður tilbúinn! :)

...kannski að maður ætti að fara til Jóa að njósna :wink:

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 28 Nóv 2011, 01:50
frá Björgvin
sveinn skrifaði:Það verður gaman að sjá þennan þegar hann verður tilbúinn! :)

...kannski að maður ætti að fara til Jóa að njósna :wink:

Það er um að gera að kíkja og njósna :) Passaðu þig samt að hann er ekki orginal :D vantar reyndar amg svuntuna að framan og er ennþá að leita af góðum sílsalistum en hann sker sig doldið úr öðrum C123 bílum með litinn og alles :)

Liturinn er ekki allra :wink:



kveðja

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 30 Nóv 2011, 21:59
frá Ronny
Sá þennan í dag hjá Jóa ! :D

Þeir voru eitthvað að dunda í honum ! :P

Hann var bara svo skítugur(Bíllinn,ekki Jói) að liturin var ekki að njóta sín!

Styttist óðfluga í :Drivermanual:

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 10 Des 2011, 01:19
frá Björgvin
Ronny skrifaði:Sá þennan í dag hjá Jóa ! :D

Þeir voru eitthvað að dunda í honum ! :P

Hann var bara svo skítugur(Bíllinn,ekki Jói) að liturin var ekki að njóta sín!

Styttist óðfluga í :Drivermanual:
Hann er kominn úr viðgerð, búið að setja lúguna í hann, rúðurnar, gera við kúplinguna, og bara tilbúinn í skoðun :) Keyrði hann í dag frá Jóa og í skúrinn þar sem stuðararnir og síðustu ristar og listar verða settir á fyrir skoðun, búinn að fá númeraplöturnar á hann :) Fer vonandi í skoðun um miðja næstu viku :)

Ljúft að keyra hann en verður ennþá ljúfari þegar allar klæðinigar í hurðir eru komnar í hann smá veghljóð :)

Kveðja

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 10 Des 2011, 08:47
frá Angelic0-
:tumbsup2:

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 10 Des 2011, 10:30
frá BjörgvinS
Glæsilegt, verður gaman að sjá gripinn fullkláraðann. Ég er að fíla að þú sért ekki að fara sömu leið og flestir aðrir í litavali, ekkert gaman að hafa þetta allt eins :D

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn

Innsent: 10 Des 2011, 11:26
frá JBV
Þetta hlýtur að verða þín besta jólagjöf þegar hann verður orðinn fullbúinn? :D