Síða 11 af 15
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ á leið á mölina
Innsent: 21 Nóv 2011, 16:52
frá Björgvin
L O K S I N S segi ég nú bara, fór með bílinn á verkstæði 28 okt síðastliðinn til að láta skipta um diska og klossa að framan og aftan ásamt því að skipta um alla vökva og síur í bílnum... Endaði að það þurfti að skipta um handbremsubarka hægra megin og allar fjórar öxulhosurnar að aftan.... Á einhvern ótrúlegan hátt náði nýr umboðsaðili Öskju í Reykjanesbæ að klára verkið klukkan 1400 í dag... jamm lásuð rétt það vantar bara eina viku uppá að bílinn hafi eytt heilum mánuði uppá lyftu inn á verkstæði fyrir "alla" þessa vinnu sem unnin var í honum. Þeir náðu ekki einu sinni að tappa loftinu af kúpplingunni á þeim tíma sem var nú einn af aðalútgangspunktum sem ég lagði áherslu á að klára...
En hann er búinn og á morgun mun hann fara til hans Jóhannesar í Réttum Bílum í Kópavogi sem ætlar að setja lúguna og aftur og framrúðu í bílinn ásamt að renna aðeins yfir hann áður en hann fer í skoðun, gluggasleða, læsingar og stilla húddið og frambrettin aðeins betur af fyrir mig
allt að gerast
Tek einhverjar myndir á morgun og skelli þeim hingað inn
kveðja
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 17:47
frá Björgvin B
Svona á þetta að vera menn vinna saman með félögunum ! Til hamingju nafni.
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 22:08
frá Angelic0-
Ég á voðalega erfitt með að skilja þetta innlegg...
En hvort ertu að hrósa eða skjóta niður K.Steinarsson þarna

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 22:11
frá Björgvin
Angelic0- skrifaði:Ég á voðalega erfitt með að skilja þetta innlegg...
En hvort ertu að hrósa eða skjóta niður K.Steinarsson þarna

K steinarsson er ekki viðgerðaraðili fyrir Öskju

er ekkert að segja annað hvað þetta tók langan tíma, þú mátt túlka það hvort sem það hafi verið afþví skrúfurnar voru allar ryðgaðar fastar eða bremsudælurnar allar fastar eða af því að hugsun nánast allra verkstæða er sú að svona gamlir bílar í uppgerð mæta alltaf afgangi í röðinni
kveðja
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 23:32
frá Alpina
Hvaða litur er þetta ??
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 23:40
frá Björgvin
Alpina skrifaði:
Hvaða litur er þetta ??
Violante, litanúmer 339-1 fyrir fyrsta afbrigðið af litnum á litakortinu frá Benz, eru til þrjár blæbrigða útfærslur
kveðja
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 21 Nóv 2011, 23:53
frá Ásgeir Örn
Verður frábært að sjá þennann á ferðinni, ótrúlega fallegur litur!
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 22 Nóv 2011, 08:37
frá Angelic0-
hehe ok
Fallegur bíll none-the-less og þessi litur fer honum mjög vel

Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 22 Nóv 2011, 11:50
frá Ronny
Hann er að verða glæsilegur hjá þér Björgvin !
Og hér eru felgur , sem hann yrði geðveikur á !
http://www.ebay.com/itm/AMG-Penta-8X16H ... 280wt_1051" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Mercedes Benz W123 230 CE árg 1983/ Lokaspretturinn
Innsent: 22 Nóv 2011, 16:29
frá JBV
Það væri gaman ef þú kæmist á næstu samkomu (n.k. mánudag) á gripnum.

Kannski full bjartsýnt að ætla bílinn tilbúinn fyrir þann tíma - eða hvað ?
