Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#12
Björgvin B skrifaði:Ég skoðaði þennan vagn áðan, virkaði bar vel á mig. Einhverjar boddíviðgerðir þurfa að fara fram en þetta er bíll sem getur orðið mjög góður.
Búin að standa í 5 ár og í gang fór hann án teljandi vandræða, það er ekki að spurja að Mercedes Benz þetta eru bestu bílar í heimi ! :mercedes:
Takk fyrir innlitið áðan Björgvin. Já hann hafði staðið í sirka 4-5 ár minnir mig. Kom skemmtilega á óvart hvað hann rauk í gang og gengur þétt og vel. Mjög stuttu áður en honum var lagt þá var hann reyndar á verkstæði og skipt um flest í kveikjukerfinu skilst mér og alternator tekinn upp. Svo var sett í hann önnur sjálfskipting sirka 6mán áður en honum var lagt. Hann er mjög mjúkur og flottur á skiptingunni og virðist hún vera bara í alveg fínasta standi. Það eina sem er að hrjá hann er að hann pikkar sig ekki niður þegar pedallinn er settur alveg í gólfið. Ef maður er t.d á 90-100 og gefur honum þá bara vinnur hann sig jafnt upp en gírar sig ekki niður. Einhver sem þekkir hvað það getur verið?
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#13
Þórður A. skrifaði:
BjörgvinS skrifaði:
Þórður A. skrifaði:Djöfull langar mig í hann! hehe. Hvað er þetta kvikindi í hesta kröftum?
Skráningarskirteinið segir 299HÖ 8) Og ég get ekki betur fundið en þau séu þarna ennþá
LIKE! veistu hvað hann er fljótur í 100? (er ekki að nenna að gúgla :) )
Nei þekki það nú ekki....
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#14
Effekt 272 HK ved 5000 o./min.; med katalysator: 242 HK ved 4800 o./min.
fra 09/87: 300 HK ved 5000 o./min.; med kat.: 279 HK ved 5200 o./min.
Dreiemoment 430 Nm ved 3750 o./min.; med kat.: 390 Nm ved 3500 o./min.
fra 09/87: 455 Nm ved 3750 o./min.; med kat.: 430 Nm ved 3750 o./min

Akselerasjon 0-100 km/t 6,9 (med kat.: 7,6) sekunder; fra 09/87: 6,8 (med kat.: 7,2) sekunder

http://mercefreaken.com/" onclick="window.open(this.href);return false;

Flott framtak.
Þessi verður glæsilegur :clapping:
Mercedes Benz - C124 Sportline - M104 - 5 gíra bsk - LSD

Aron Matthíasson
7700323

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#15
BjörgvinS skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:Já við Hjalti skoðuðum þennan...

Hvað borgaðiru fyrir þetta? Eða má maður ekki spurja svona :mrgreen:
Held ég hafi bara borgað sirka það sem var eðlilegt að borga fyrir hann miðað við hvernig hann var þegar ég kom að honum. Ég vissi t.d ekkert um ástand á mótor annað en það að hann var gangfær þegar honum var lagt. Þannig að hann var nú keyptur bara með krosslagða fingur og vonast eftir því besta :D Það getur líka verið mjög fljótt að vinda uppá sig kostnaður við það að taka svona bíl almennilega í gegn þannig að maður þarf að fara pínu varlega í það. En hann hefur algerlega staðið undir væntingum og rúmlega það, er í mun betra standi en ég átti von á.
En er langt síðan þú og Hjalti kíktuð á þennann? Af hverju náði það ekkert lengra, leist ykkur ekkert á ástandið á honum kannski ?
Mér leist alveg á hann. Þetta er auðvitað 560 SEL, ekki til flottari w126.

En það var Hjalti sem ætlaði að kaupa... mig minnir að hann hafi boðið 30-50 þús. en fékk hann ekki.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#17
Var að koma af smá rúnti og niðurgírunarvandamálið er leyst. Þegar það var skipt um sjálfskiptingu í honum þá er sennilegast að það hefur aldrei verið klárað að stilla þetta til. Aftan á mótornum er barki sem liggur frá bensíninngjafararminum og niður að sjálfskiptingu. Ég herti rétt örlítið á þessum barka og það var ekki að spurja að því, hann gírar sig niður um leið og hann fær gjöf og kick-downið er komið inn líka ef maður setur pedalinn alveg í gólfið 8) Google frændi leysti þetta mál, verulega sáttur.
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#19
Benni skrifaði:Til hamingju með þennan Björgvin.

Þetta hljómar bara eins og "Barn find" :lol:
Sæll Benni, takk fyrir það. En hvað varðar "barn find" þá veit ég nú ekki :lol:
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06