JBV skrifaði:Glæsilegur w124 - og að því er virðist af myndum, frábært eintak. Ánægður með hvað þú leggur mikinn metnað í þennan Benz. Ef þú heldur honum svona næstu árin, þá kæmi mér ekki á óvart að hann gæti selst á svipuðu verði eða hærra - en þessi gyllti 300e 4matic sem margir eru að fara á límingunum útaf verðlagningunni.
Hvet þig þó til að endurskoða þetta með "facelift" uppfærsluna á húddi, skotti ofl. Þar sem bíllinn er flottari svona original að mínu mati allavega. Í raun er það skrítið að menn vilji skipta út meira krómi fyrir minna.

ég er einmitt buinn að vera hugsa þetta framm og til baka..
er mikið að spá í að fá í hann leður innréttingu. og svo sverta grindina í grillinu.
hann verður heilmálaður í vor eða snemma í sumar. og þá veltur allt á því hvort hann fái facelift eða ekki.
ég er byrjaður að venjast þessu útliti mjög mikið.
ég er ekki buinn með þennan ennþá. nu tekur við innréttingar upgrate, eins og mælarnir og svo miðstöðin. ætla fá ljós í hana aftur. hef aldrei séð w124 með ljós í miðstöðini.
finnst hann vígarlegur. og vona að öllum finnist hann flottur.
ég er M.Benz unnandi mikill og vil að benzarnir minir séu eins og nyir
