Síða 2 af 4

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 04 Jan 2010, 21:05
frá BragiGuðna
Hef verið að dunda í rólegheitum í þessu yfir hátíðarnar, en maður er alltaf kallaður á sjó og má ekkert vera að þessu. Nú er búið að raða ventlunum í og herða heddið niður og allt það klárt. Nuddaði ventlalokið svo með Brasso að lokum svo það glansar alveg :). Svo þarf maður líklega að nota brasso á 4 vikna fresti á ventlalokið til að viðhalda glansinum, en það er bara gaman að því :D

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... G_4863.jpg[/img]

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 27 Maí 2010, 23:04
frá BragiGuðna
Nú hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan ég póstaði update-i á þennan þráð. Ég kláraði að gangsetja vélina í febrúar og er hún núna klár.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 4935-1.jpg[/img]

Þá fór ég að einbeita mér að boddívinnu, en það er eitt og annað sem þarf að bæta og laga hérna. Hér tek ég fyrir hurðastafinn hægra megin.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 0_0091.jpg[/img]

Þetta er á leiðinlegum stað. Ég tók bætningastykki úr næsta bíl.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... G_4936.jpg[/img]

Tók stykkið og lagaði það til með klippum og slípirokk, og tók eins stykki úr gráa (svo að það verði ekki tvöfalt járn í þessu), og heilsauð þetta í,. Slípaði niður suðurnar og grunnaði, og er bara nokkuð sáttur við árangurinn. Ætla síðan að bora gat þar sem það sést ekki og úða riðvörn inn í hurðastafinn.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... G_4934.jpg[/img]

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 27 Maí 2010, 23:11
frá BragiGuðna
Og meiri boddývinna. Það er búið að riðbæta bæði innri- brettin og grunna. Hér er verið að undirbúa fyrir riðvörn. Er að panta nýtt frambretti hægra megin, en ætla að nota vinstra frambrettið áfram. Síðan verða bæði frambrettin sprautuð, og stuðarinn sprautaður í sama lit og bíllinn.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... G_4938.jpg[/img]

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 28 Maí 2010, 00:06
frá ARG22
Glæsilegt gamli

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 31 Maí 2010, 19:31
frá BragiGuðna
Nú hefur eitthvað gerst í þessu verkefni. Búið að sprauta framstuðarann, annað frambrettið og plöstin á frambrettin ásamt litla draslinu neðan við ljósin. Er mjög sáttur við það hvernig samlitunin er að koma út.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 0_0194.jpg[/img]

Svo er nýtt hægra frambretti í pöntun.

Nú er maður hinsvegar farinn á sjó þannig að það gerist sennilega lítið í þessu næstu 2 vikurnar eða svo.

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 23 Júl 2010, 03:13
frá BragiGuðna
Þá er bensinn kominn á götuna aftur. Hér sést vel hvernig samlitunin kemur út og ég er mjög sáttur við árangurinn. Nú vantar bara sílsaplöstin á bílinn en þau verða auðvitað sprautuð í sama lit og bíllinn. Hér sést líka hvað bíllinn var fáránlega hár að aftan, en það er búið að laga það í dag með því að stytta afturgormana með slípirokk :)

Aðrar nýlegar endurbætur á bílnum:

- Setti í hann leðurstýri úr 300E sem ég keypti hjá Ztebbsternum hér á spjallinu, ásamt útihitamæli.
- Setti í hann leðurhöfuðpúða afturí, en ég hafði ekki gefið mér tíma í það þegar ég setti leðurstólana í bílinn á sínum tíma.
- Tók webasto olíumiðstöðina úr bílnum ásamt control boxinu og sendi þetta suður í yfirhalningu. (gæti kostað summu, en þetta verður að vera í lagi).
- Nýjir loftkældir diskar að framan og nýjir bremsuklossar frá tækniþjónustu bifreiða.
- Nýjar aurhlífar eru í pöntun, ásamt pinionspakkdós í afturdrifið, en það smitar örlítið.


[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 0966-2.jpg[/img]

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 24 Nóv 2011, 20:18
frá BragiGuðna
[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 020014.jpg[/img]

Kom að bílnum svona í morgun kl. 7. Gott að hafa Webasto olíufíringu í kuldanum!

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 24 Nóv 2011, 21:29
frá Logi
BragiGuðna skrifaði:Gott að hafa Webasto olíufíringu í kuldanum!
Ójá, þetta ætti að vera staðalbúnaður í öllum bílum 8)

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93

Innsent: 29 Nóv 2011, 16:53
frá BragiGuðna

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

Innsent: 29 Nóv 2011, 20:10
frá JBV
Alvöru stöff :tumbsup: