Re: jæja! benz aftur á planinu! (afar umtalaður)

#12
gott að sjá að þessi bíll fær núna þá ummönnun sem hann á skilið ! :clapping:

svona eintök eiga alls ekki að fara til spillis.

án þess að vera með leiðindi gagnvar fyrri eiganda þá fannst mér það frekar grátlegt hvernig farið var með hann.

(ég þekki nátturulega ekki fyrri eiganda þannig ég get ekki vitað afhverju svona var komið fyrir bílnum og biðst velvirðingar á "orðavali" minu ef þau hafa farið fyrir brjóstið á eitthverjum)

ég væri meira en game í að kaupa þennan bíl einn daginn , passaðu hann vel fyrir mig ívar !
Magnús B Arnarsson
Subaru Impreza 1996 (winter beater)
Polo 1.4 1999 (seldur)
Vento 2.0 1994 (seldur)
Benz E220 1994 (í notkun)
Kymco 50cc :cool: (selt)
"Losers always whine about their best. Winners go home and f*** the prom queen."

Re: jæja! benz aftur á planinu! (afar umtalaður)

#14
Frábært!! Þetta sjaldgæfa eintak er komið í góðar hendur. :clapping: Kemur samt á óvart hvað bíllinn lítur vel út af myndum að dæma m.v. forsöguna.

Innilegar hamingju óskir með vagninn Ívar. Við vitum hvers þú ert megnugur að gera bíla í toppstand. Þ.a.l. verður spennandi að fylgjast með þér að koma þessum aftur til vegs og virðingar - sem ég efast ekki um að þú gerir. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: jæja! benz aftur á planinu! (afar umtalaður)

#15
kærar þakkir,

já bíllinn kom nefnilega miklu betur út undan drulluni heldur en maður hélt, konan sem átti hann virðist hafa látið ræsir/öskju/TB halda bílnum í góðu lagi mekanískt séð, en tjónið hefur greinilega verið of stór biti, og þessvegna bíllinn meira og minna staðið síðan hann tjónaðist, sem var 2006 held ég,

það þarf að mála hann allann ef hann á að verða góður i.m.o, þótt partamálning myndi duga vel þar sem að lakkið er bara ekkert slæmt á mörgum stöðum,

ég tók eftir að framdiskar og klossar eru á seinni helming, og sömuleiðis drifskaptsupphengja, en annars er bíllinn í raunini í afar góðu standi, og keyrir afar vel, engin aukahljóð, ekkert skrölt, ekkert slag í stýri, engin skemmd í leðri eða innrétingu,

i.m.o algjört eintak í að taka í gegn, þar sem maður er með stráheilan bíl til að byrja með, sem vantar fegrun, en ekki gaddslitið dót sem maður gefst upp á
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

Re: jæja! benz aftur á planinu! (afar umtalaður)

#20
takk takk

væri gaman ef hann hefði einhverjar upplýsingar handa mér :)

það er svo langt síðan ég var að garfa í upplísingum um þennan bíl fyrir fyrri eiganda, að ég man voða lítil detail um hvað ég fékk út úr þessu,
á sínum tíma þá fann ég flr svona 400E/wideboddý bíla á netinu, og fann e-h upplýsingar þar,
ég hinsvegar finn þetta ekki lengur.. og vill nú þá ekki þurfa að standa og falla með að þetta sé 500 boddý,

ætla athuga í öskju á morgun með partanúmer á nokkrum hlutum til að bera saman,

ég gerði það áður. og fékk þá út að bíllinn hefði komið svona orginal, það var gert í gamla EPC, langar að sjá hvað nýja segir

hlynzi, 500 mótor væri fun, en fyrir mér sleppur hann alveg sem 4.2l
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur