Síða 4 af 5
Re: W201 190E 1992
Innsent: 16 Feb 2010, 20:31
frá JBV
Ásgeir Yngvi skrifaði:alveg fór þetta framhjá mér !
Til lukku með þetta Jón Birgir
Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.
Takk fyrir Ásgeir Yngvi.

Hef í sjálfu sér ekki mikið verið að flíka þessum fyrir utan þennan þráð sem ég stofnaði til - þar sem eitt og annað þarf að komast í stand áður en hann kemur fyrir almanna sjónir. Þar ber fyrst að telja endurnýjun á sjálfskiptingu þar sem bandið fyrir bakkgírinn er farinn í henni ásamt einhverju fl.

En bíllinn er góður vélar- og boddýlega séð. Hvenær átti Guðmundur Ásgeir bílinn?
Re: W201 190E 1992
Innsent: 16 Feb 2010, 21:41
frá Ásgeir Yngvi
JBV skrifaði:Ásgeir Yngvi skrifaði:alveg fór þetta framhjá mér !
Til lukku með þetta Jón Birgir
Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.
Takk fyrir Ásgeir Yngvi.

Hef í sjálfu sér ekki mikið verið að flíka þessum fyrir utan þennan þráð sem ég stofnaði til - þar sem eitt og annað þarf að komast í stand áður en hann kemur fyrir almanna sjónir. Þar ber fyrst að telja endurnýjun á sjálfskiptingu þar sem bandið fyrir bakkgírinn er farinn í henni ásamt einhverju fl.

En bíllinn er góður vélar- og boddýlega séð. Hvenær átti Guðmundur Ásgeir bílinn?
umm ég er ekki viss.... ekkert svo langt síðan hann átti bílinn... gæti trúað að það sé svona ár síðan.
Re: W201 190E 1992
Innsent: 01 Mar 2010, 01:33
frá SveinnArnar
Flottur bíll - sérstaklega liturinn. Fer varla á milli mála að W201 er fyrirmyndin að W124 (nema þá að báðir hafi verið samtímis á teikniborðinu og lúrt hafi verið á þeim síðarnefnda í tvö ár).
Re: W201 190E 1992
Innsent: 11 Jan 2011, 17:03
frá JBV
Það er orðið nokkuð um liðið síðan síðast var póstað inn einhverju um gang mála á þessum Benz. Liðið er eitt ár og einn mánuður síðan undirritaður keypti hann. Það sem hefur verið gert við gripinn á þeim tíma, er eitt og annað eins og ver að ber þegar bifreið fast að tvítugu á í hlut. Þótt bíllinn þætti góður á skrokkinn og vélbúnað við fyrstu skoðun, þá kom ýmislegt í ljós sem betur mátti fara til þess að þetta gæti talist eigulegur vagn.
Það liðu ekki nema tveir mánuðir frá kaupum, þegar bakkgírsbandið fór í kassanum - og þótti fróðum mönnum að skinsamlegast væri að festa kaup á "nýrri" sjálfskiptingu heldur en að gera við þá sem fyrir var. Á vor mánuðum s.l. keypti undirritaður svo annan w201 Benz í "slátur". Sá Benz var sérdeilis heill og flestir partar og íhlutir í góðu ásigkomilagi, þar með talin sjálfskiptingin. Slátur-Benzinn stóð í skúrnum allt sumarið meðan mjatlaðir voru úr honum hlutir fyrir þann rauða, sem og aðra þá sem áhuga höfðu á varahlutum úr honum.
Það sem nýtt var úr slátur-Benzinum og sett í rauða Benzinn var eftirfarandi:
*Sjálfskipting sem var ekin 201.700 km. og er alveg hnökralaus í akstri. Bíla-doktorinn sá um skiptin.
*Grillið (það gamla var dældað og plastið í því brotið). Hlynzi málaði plastið svo í desember s.l.
*Pioneer tæki. Hlynzi sá um ísetningu.
*Nýleg 15" sumardekk á álfelgum.
*Öxull v/m aftan. Ísetning, Bíla-doktorinn.
*Slanga/hosa milli sogreinar og spjaldhússins
*Inniljós/öryggisbeltaljós/topplúgurofi (sambyggt unit).
*Miðstöðvarmótor.
*Gúmmíhulsa utan um stútinn í bensíntankinn (hin var orðin fúin þannig að skottið angaði allt áður við áfyllingu).
*Viðvörunarþríhyrningur inn í skottlokið (vantaði áður).
*Bremsudiskar að aftan (nánast nýir) júní 2011
Auk þess hefur verið skipt um/keypt:
*Allt pústkerfið (kvarfakúttnum sleppt). Pústverkstæðið Ás.
*Nýr rafgeymir. N1.
*Nýjar aðalljósaperur. N1.
*Óslitin 15" vetrardekk. GMG.
*15" Avantgardefelgur. GUMMCO. (miðjugöt í felgum víkkuð/rennd hjá Renniverkstæði Árna, fyrir felgumiðjur).
*Felgumiðjur. Askja
*Bremsuklossar
*Drifskaftsupphengja. Bíla-doktorinn
*Nýir stólpúðar. Bíla-doktorinn
*Hjólalega v/m framan. Bíla-doktorinn
*Ný kol í altenator. Bíla-doktorinn
*Nýir Bosh kertaþræðir. Bíla-doktorinn *edit 3.mars 2011*
*Heddið planað 25. mars 2011 (þá ekinn 219.xxx km.) (Þröstur sá um aðgerðina)
*Nýtt slípisett (heddpakkning frá Kistufelli)
*Ný bensíndæla og sía. Bíla-doktorinn
*Ný Mercedes-Benz kerti. Askja
*Ný slanga/hosa milli sogreinar og spjaldhús. Askja
*Ný gúmmíhulsa neðan á spjaldhúsið. Askja
*Innspýtingarhaus. Vaka (Ásgeir Örn)
*Nýir bremsuklossar að aftan. N1 (júní 2011)
*Ný spindilkúla v/m. Bíla-doktorinn. (ágúst 2011)
Tjékklistinn yfir það sem átti og á að gera, er nokkuð langt kominn. En það sem er einna helst á stefnuskránni er að setja í bílinn fjarstýrðar samlæsingar. En unitið er til úr partabílnum. Laga þetta týpíska slit á bílstjórasæti. Útlitslagfæringar, eins og hagkaupsdældir og rispur verða látnar bíða um sinn. Í dag er bíllinn ekinn 218.600 km. Rann athugasemdalaust í gegn um skoðun þann 3. janúar.
Re: W201 190E 1992
Innsent: 11 Jan 2011, 20:03
frá gmg
Einn fallegasti w201 bíll á landinu, þessi rauði litur fer honum svo vel

Re: W201 190E 1992
Innsent: 11 Jan 2011, 22:23
frá ARG22
Þetta er skemtilegt hjá þér Jón Birgir, einmitt gaman að horfa aðeins um öxl og sjá hvað hefur gerst í svona verkefnum

Re: W201 190E 1992
Innsent: 11 Jan 2011, 23:20
frá JBV
Þakka ykkur fyrir hólið félagar.
Hérna koma myndirnar sem áttu að fylgja upptalningarlistanum
Svartmálað grillið eftir Hlynza kemur mjög vel út.
[img]
http://img38.imageshack.us/img38/9118/dsc00022ve.jpg[/img]
[img]
http://img703.imageshack.us/img703/175/dsc00016s.jpg[/img]
[img]
http://img28.imageshack.us/img28/2517/dsc00015yr.jpg[/img]
Re: W201 190E 1992
Innsent: 12 Jan 2011, 11:05
frá AM
Fallegur bill hja ther Jon, med theim flottari

Re: W201 190E 1992
Innsent: 12 Jan 2011, 17:11
frá Björgvin B
Glæsilegur hjá þér félagi !

Re: W201 190E 1992
Innsent: 12 Jan 2011, 19:56
frá Benzari
Ekkert smá flottur litur.
Vel að verki staðið Jón, þessi á mörg ár eftir.