Síða 3 af 5
Re: W201 190E 1992
Innsent: 17 Des 2009, 09:10
frá Logi
FatBoy skrifaði:Ásgeir Örn skrifaði:Ef hann er eða tala um að þetta sé 205/55 þá finnst mér líklegast að þetta sé r16 en ekki r15. Ég held að bíllinn væri flottastur eins og hann á að vera upprunalega á 185/65r15 eða á 205/55r16, ég er sjálfur með 195 og mér finnst það aðeins of belgmikið.
Gott að þið fóruð að velta þessu svona mikið fyrir ykkur, nú rifjast þetta allt upp fyrir mér. 15" var það klárlega.
Sportline kom á þessum árum með 15x7"felgum og á þeim 205/55 R 15 87 H.
Frábært að keyra hann á því.
Og hananú - þannig var það og ekki öðru vísi

Þetta passar. 195/65-15 og 205/60-15 (Sportline) eru svo stærðirnar á W124. 205/55-16 smellpassar undir W124, þannig að ég færi í 205/50 í 16" undir W201.
Re: W201 190E 1992
Innsent: 17 Des 2009, 13:54
frá sveinn
Til lukku með þenna Jón Birgir!! ...góður litur! Er hann ekki svartur að innan?
Re: W201 190E 1992
Innsent: 17 Des 2009, 15:11
frá JBV
Takk fyrir Sveinn og Sergio. Mælaborðið er svart en sætin eru eins og í 220TE sem ég seldi til Höskuldar.
Ég þakka ykkur mikið vel fyrir þessa dekkja/felgu umræðuna. Þar sem ég er mikið að pæla í hvaða dekkjastærð ég eigi að fá mér. Vegna þess að felgurnar verða 15" þá verð ég að miða dekkjastærðina út frá því. Ég held að 205/55 R 15 87 H verði fyrir valinu ef mið er tekin af myndinni og upplýsingum frá "Fatboy".
Re: W201 190E 1992
Innsent: 17 Des 2009, 21:14
frá spjot
Þetta er fallegur bíll og á bara eftir að batna sé tekið mið af forsögu eigandans. Verður gaman að fylgjast með þessum. Áttu myndir af innviðum ? (Hver þarf hvarfakúta????)
Kv, Geir.
Re: W201 190E 1992
Innsent: 17 Des 2009, 21:26
frá JBV
spjot skrifaði:Þetta er fallegur bíll og á bara eftir að batna sé tekið mið af forsögu eigandans. Verður gaman að fylgjast með þessum. Áttu myndir af innviðum ? (Hver þarf hvarfakúta????)
Kv, Geir.
Takk fyrir Geir. Það stendur til að byrta myndar innan úr bílnum - bara ekki komið því í verk ennþá að taka þær. Varðandi svigaspurninguna, þá er þetta eitthvert regluverk gert af einhverjum hverúlöntunum innan ESB.

Re: W201 190E 1992
Innsent: 18 Des 2009, 15:39
frá hjalti.g
Fallegur bíll, til hamingju, hvarfakútar þurfa ekki að vera í bílum eldri en 1995

Re: W201 190E 1992
Innsent: 18 Des 2009, 18:05
frá Ásgeir Örn
Shiii, bara fyrir forvitnis sakir fletti ég upp hvað þessi dekk kosta...
Eini staðurinn sem við eigum viðskipti við hjá Vöku sem á þetta er Sólning og þar kosta þessi dekk 27.200 kr. stk.. Þá er það heilsársdekk.
Re: W201 190E 1992
Innsent: 18 Des 2009, 20:18
frá Benzari
Til hamingju Jón.
Flottur litur en finnst samt að þú eigir að eiga W124 E-class.

Re: W201 190E 1992
Innsent: 19 Des 2009, 00:34
frá JBV
Takk fyrir Hjalti og Teddi.
Maður verður að prófa C-flokkinn líka Teddi. Á einnig eftir S-deildina.
Já Ásgeir - ég hef aðeins verið að kynna mér verð á dekkjum, m.a. þessum, og þau eru sko ekki "gefins" í dag.

Re: W201 190E 1992
Innsent: 16 Feb 2010, 18:02
frá Ásgeir Yngvi
alveg fór þetta framhjá mér !
Til lukku með þetta Jón Birgir
Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.