JBV skrifaði:Thrullerinn skrifaði:JBV skrifaði:Þetta er orðið ansi myndarlegur bílfloti hjá þér Þröstur. Það væri gaman að sjá nýjasta mynda up-date af flotanum.

Já ég þarf að stilla þessu upp einn daginn, gaman að eiga myndir til minninga.
Báturinn hangandi aftan í jeppanum og síðan sportararnir tveir...
Er að fara með bátinn í geymslu á næstu vikum, ætli ég taki ekki myndir í vor.
Það væri gaman að því. Þetta er annars enginn smá sportbátur sem þú átt. Hvað ertu með stóran þeytara aftan í honum?
[img]
http://www.boat-world.com/photos03/1216 ... 7498_1.jpg[/img]
Það er nú bara 4 cyl 3.0L mercruiser mótor í honum, gengur 34 mílur eða svo, hann
er þokkalega tækjum búinn og ég notaði hann mikið í sumar.
Eftir að hafa silgt með nokkrum stærri bátum og séð hvað það kostar að setja bensín
á þá gæti ég ekki verið sáttari! Síðan er þessi akkúrat stærðin til að taka upp og hengja
aftan í bílinn, fór t.d. með hann upp í Skorradal og á Arnastapa í sumar. Bara gaman.