SELDUR
M.Benz 420SE
Nýskráður, 11.01.1988
M116 4,2 lítra vél.
224 hestöfl, ekin 185.þúsund km.
Impala metallic að utan. (441)
Ljós að innan. (mushroom 075)
Bíllinn er keyptur árið 2002 af Smára í Hamborg fyrir einhvern Ásgeir, hann selur hann svo manninum sem ég kaupi hann af.
Mjög lítið keyrður þessi sjö ár eða 37.þúsund km.
Kemur frá Hólmavík og bónleysi við fjöruborðið þýðir freknur útum allt, fljótt að ryðga í steinkastspunkta á bílum sem standa við sjóinn.
Húddið er einna verst og verður það sprautað í lok október.
Eigandinn hefur sinnt viðhaldi vel og er bíllinn í ágætu standi, botninn er að sjálfsögðu stráheill.
Aukabúnaður:
Topplúga
Rafmagn í framrúðum
Gardína (biluð)
Rafmagn í bílstjórasæti
Tveggja tóna flauta
Höfuðpúðar afturí
Mælir fyrir útihitastig
Næstumþví Kópavogsnúmer PY-227
Akstur:
20.03.'02 147.732 km.
05.06.'03 159.210 km.
10.05.'05 175.207 km.
20.03.'06 179.979 km.
17.10.'06 182.511 km.
10.05.'07 183.115 km.
05.05.'09 184.278 km.
Mynd tekin þegar heim var komið og ekkert búið að sjæna.
Búið að setja plaststykki þar sem vantar á myndinni en ekki alveg eins og á að vera.
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
Sunnudagurinn 4.okt.'09
Við geimskip O.R. og norðan við Bauhaus húsið.
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
Mercedes Benz 420SE '88
#1Seinast breytt af Benzari þann 07 Júl 2010, 01:07, breytt 10 sinnum alls.
Teddi 