Ennþá finnast nothæfir W123 bílar

#1
Já sæll.... Ég álpaðist til þess að fara og skoða einn W123 bíl sem búinn er að vera auglýstur lengi á mbl.is. Þetta er 200 bíll ekinn aðeins 155.000 km og er ryðlausasti W123 bíll sem ég hef séð til sölu í mörg ár. Ég endaði semsé á því að fara á honum heim fullt af aurum fátækari, :roll: :? :wink: en tiltölulega ánægðum með bílinn engu að síður. :wink: :D

Hér er ein mynd af gripnum stolin af mbl, en vonandi koma betri myndir síðar.

[img]http://www.stjarna.is/runar/images/2001984/IIK57.jpg[/img]


Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Ennþá finnast nothæfir W123 bílar

#5
Til hamingju.

Gott að þetta komist í góðar hendur, var ekki sáttur við að sjá hann í saltinu síðasta vetur.

Minnir að þetta sé bíllinn sem var fluttur inn af Master sem var í Glæsibæ fyrir 1,5-2 árum, Gunnar Már veit meira um það ef þetta er sá bíll. Ásett verð þá var 1.200.þúsund að mig minnir.
Teddi :mercedes: