Re: Benz 300E 1990

#11
Smá saga: Óvirkt loftnet.

Þannig er það að ég er með rafdrifið loftnet og nú þegar það er farið að hlýna í veðri þá ætlaði ég að skella því upp. En það gerðist ekki neitt, svo ég fór í það að rífa útvarpið úr og mældi leiðnina úr því, hún var góð, svo ég prufaði að slökkva á spilaranum með power takkanum. Smelli á hann og þá kemur loftnetið upp, þá sá ég það að Band (útvarpið) var á sama takka og power takkinn en maður þarf að halda takkanum inni til að slökkva alveg á spilaranum. :lol: Ég hlusta nefnilega alltaf á geisladisk því ég nenni ekki að hlusta á Rás2 og Bylgjan né FM957 nást hérna á Grundarfirði og það kom í ljós að lofnetið virkar ekki nema að það sé stillt á útvarpið. :P

Hákon


Mercedes Benz w124 300E 1990
Mercedes Benz w124 E220 1994

Re: Benz 300E 1990

#13
flottur bíll !


En já þú ert úr Grundarfirði segiru... hvað ertu gamall? Gá hvort ég á að kannast við þig, kærastan mín er úr Grundó ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Benz 300E 1990 / Skipta um loftsíu í miðstöð? /

#17
Sælir, ég ætlaði að skipta um loftsíu fyrir miðstöðina og ég fann einn link inná netinu sem sýnir hvar loftsían er http://www.micronair.us/assets/pdfs/102.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;.

Hvað með það ég opnaði þetta og reif allt frá svo kom ég að einhverju boxi og þar voru tvær hringlóttar viftur :| og þá hélt ég að ég væri á vitlausum stað. En ég set myndir með.

Er loftsían fyrir neðan þessar viftur eða einhverstaðar annarstaðar?

[img]http://i41.tinypic.com/2qtz4on.jpg[/img]

[img]http://i40.tinypic.com/1z67gbn.jpg[/img]

[img]http://i42.tinypic.com/t4z7np.jpg[/img]

kv. Hákon
Mercedes Benz w124 300E 1990
Mercedes Benz w124 E220 1994