Re: Mercedes-Benz 230CE - 18" AMG Monoblock bls. 12

#183
Æj ég veit það ekki.
Eftir að ég setti hann á 18" aftur þá langar mig bara helst að halda honum.
Er búinn að eyða miklu í hann til að gera hann svona góðan og lakkið er orðið 100% sem mér finnst mjög gaman. Svo eftir að ég fæ þessa sendingu frá Þýskalandi á föstudaginn og set það undir þá er hann orðinn 100% alveg. Er í vafa með þetta en ég er orðinn mjög sáttur við bílinn.
Kannski er það bara þannig að ef maður klárar eitt verkefni, þá fer manni að klæja í annað :)
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: Mercedes-Benz 230CE - 18" AMG Monoblock bls. 12

#184
gunni7 skrifaði:Æj ég veit það ekki.

ef ég væri þú þá myndi ég hugsa mig aðeins um áður en ég færi að spá í að selja, þú ert búinn að eyða fullt af peningum í þennan bíl og færð það aldrei aftur til baka;)

gerðu frekar GEÐVEIKANN overall bíl ,með góða aksturhæfileiika, breyttu honum og fáðu almennilegt afl(annað hvort stærri mótor eða turbo) og gerðu þetta að geðveikur krúser/leiktæki

það er það sem ég myndi vilja gera með þennan bíl :wink:
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

Re: Mercedes-Benz 230CE - 18" AMG Monoblock bls. 12

#185
Ég er búinn að vera að hugsa þetta með stærri vél. Þetta hefur verið margrætt hér af mér og pabba.
Ég sé kosti og galla við það eins og hvað annað og ætlaði einmitt að fá álit hjá ykkur stjörnu-mönnum um það.
Kostir eru auðvitað aukinn kraftur og skemmtanagildi en gallar yrðu aukin eyðsla og dýrara viðhald.
Það sem mér finnst vera aðalmálið er hvort bíllinn myndi tapa original verðugleika, þ.e.a.s. ekki vera original lengur.
Persónulega fyndist mér þetta þess virði en auðvitað kostar þetta sitt af peningum og tíma og sérþekkingu. Ég er t.d. ekki með aðstöðu né sérþekkingu þó svo að ég hafi brennandi áhuga fyrir því að læra af svona reynslu en það er svosem alltaf hægt að finna aðsöðu.
Auðvitað hjólar maður bara ekkert í svona nema með þekkingu og yrði þá mikil hjálp nauðsynleg.
Væri þá ekki bara einfaldara að fá sér bíl með stærri vél?
Fyrir mér er Turbo ekki möguleiki því það er auðvitað dýrt, viðhaldsfrekt og myndi bara ekki henta þessari vél. Ef það væri möguleiki þá myndi þurfa betri grunn til að byggja á og þá meina ég 6 cyl mótor.
Svo á hinn bóginn myndi þetta alls ekki vera notað sem leiktæki eins og í drift eða spyrnu þó að kraft yrði komið fyrir undir húddinu. Bara krúser sem tekur ágætlega við sér þegar fóturinn er settur niður sbr. 320CE eða 300CE-24

Ég sé það ekki alveg inni í myndinni,,,
en hvað finnst ykkur um þetta?
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: Mercedes-Benz 230CE - 18" AMG Monoblock bls. 12

#186
Hann er gullfallegur hjá þér bíllinn þó ég sé ekki endilega sammála felgunum en þær venjast.

Ég átti W123 230CE og mér fannst ekkert vanta í kraftinn. Þessi er ábyggilega ekkert verri. Ég átti líka C124 300CE og hann var jú fljótari upp en eyddi meira.
Á hámarkshraða hér skiptir það ekki máli.

Ef menn vilja meiri upptöku má kannski huga að lægra drifi en ég myndi ekki telja þörf á því. Kæmi bara niður á öðru.

Ekkert vera að breyta bílnum.

Komdu honum frekar í góðar hendur og fáðu þér annað verkefni.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Mercedes-Benz 230CE - 18" AMG Monoblock bls. 12

#187
Ég myndi ekkert vera að setja stærri vél í þennan bíl. Hann er mjög flottur og það væri skemmtilegt að hafa meira afl en ef eitthvað er þá held ég að hann myndi tapa verðgildi. Amk væri ég ekki til í að kaupa 19 ára gamlan bíl sem búið er að fikta í. En fólk í þessum bransa er kannski fljótt að sjá hversu vel þetta er gert.

Miklu einfaldara bara að kaupa sér flottan 320CE. Var t.d einn mjög flottur til sölu hér á spjallinu sem virtist mjög vel farinn. Var mikið að pæla í honum en fannst hann of dýr. Það er líka ódýrara en að redda annari vél.
Unnar Kjartansson
S:8670968
1987 W124 E300 4Matic
2001 Polo